22.5.2008 | 11:15
Hálfgerð magapína............spenna í loftinu..
Á mínum vinnustað er spenna í loftinu vegna Eurovision - og smá leikur í gangi með úrslitin í kvöld og á laugardaginn og auðvitað verða verðlaun fyrir getspaka.
Aðalmálið er eins og venjulega - komumst við Ísl. áfram ???? Ætla ekki að svekkja mig um of EF við komumst ekki áfram enda orðin vön Er líka að vona að heimaland mannsins míns Portugal komist áfram, aldrei þessu vant er gott lag þaðan í ár að mínu mati.
En er svo sem ekki viss hvaða þjóðir komast áfram, mikið betri lög í kvöld.
En aðalatriðið er að hafa gaman af þessu og njóta kvöldsins, hvernig sem fer !
Knús á ykkur Eurovision dúllurnar mínar, eigið gott og gleðilegt kvöld. Áfram Ísland...
Athugasemdir
Það er komin nett spenna í mig..úff..þetta verður spennandi í kvöld..
EN, já við erum orðin vön því að komast ekki áfram..
Stella (IP-tala skráð) 22.5.2008 kl. 15:13
Hmmmm, kannski að maður horfi í kvöld
Svanhildur Karlsdóttir, 22.5.2008 kl. 15:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.