12.9.2008 | 14:58
Föstudagur....
Eftir blóðprufur í morgun og viðtal við lækninn minn var ég boðuð á FSA kl.09.40 á mánudagsmorgun í skanna af hálsi. hann var semsagt búin að fá útúr ómskoðun gærdagsins.
Talaði við lækninn minn sem þuldi upp eftir röntgenlækninum, einhverjar breytingar á skjaldkirtli, kölkun og eitthvað fleira, einhverjir þetta margir millimetra stórir eitlar við barkakíli....................ég var jafn nær og spurði og hvað þýðir það ? Svarið var ég veit ekki hvað er að þér en röntgenlæknir mælir með því að þú farir í skanna af hálsi. Kölkun er alveg í lagi er ekkert hættuleg ! Annað verður að koma í ljós.
Hm....o.k. bíð til mánudags - þriðjudags og fæ að vita niðurstöður úr blóði og skanna. Verð heima þar til þessu líkur um miðja næstu viku - vonast til að ekkert komi útúr þessu en..............er við öllu búin.
Knús til ykkar.
Athugasemdir
Thumbs up for you!
Vilborg Traustadóttir, 12.9.2008 kl. 18:00
Vonum allt það besta, knús
Svanhildur Karlsdóttir, 12.9.2008 kl. 20:41
ÆÆÆ en leiðinlegt að heyra að þú ert lasin Skjaldkirtillinn er erfiður mama mia
Mínar bestu óskir um GÓÐAN BATA kæra frænka
Kveðja Hulda
Hulda Magga (IP-tala skráð) 22.9.2008 kl. 00:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.