6.11.2008 | 19:11
Litla systir mín.....
..... er búin að upplifa margt eins og reyndar margir aðrir.
Hún var greind með MS sjúkdóminn þegar hún var liðlega tvítug og hefur verið öryrki síðan. En hún er sterk eins og svo margir í fjölskyldunni, sinnir sinni fjölskyldu og barnabörnum af miklum móð þrátt fyrir sína fötlun.
En hún er líka vakandi fyrir þeim sem minna mega sín og því sem fjölskyldumeðlimir eru að ganga í gegn um og lætur sínar skoðannir í ljós og hjálpar til. Þökk sé "litlu"systur minni fyrir stuðning undanfarna daga. Það er frábært að eiga góða að . Hún Vilborg minnir mig um margt á ömmu mína Guðfinnu sem fékk lömunarveiki liðlega þrítug en lifði sátt og glöð við guð og menn þrátt fyrir allt. Glaðværðin var henni í blóð borin. Kona sem hefur gefið okkur systkinunum gott veganesti inn í lífið.
Það verður gaman að fá þig norður Ippa !
Athugasemdir
Hva ertu full???? He he á gríns, takk fyrir...held ég...;-)
Vilborg Traustadóttir, 6.11.2008 kl. 21:06
He,he - nei vildi bara gleðja þig vevvvvvvv
Hulda Margrét Traustadóttir, 7.11.2008 kl. 06:49
Góðar systur
Svanhildur Karlsdóttir, 7.11.2008 kl. 10:01
Ég þakka auðvitað góð orð og þau glöddu mig sannarlega. Það er bara erfitt að taka hrósi. Amma hefur líka verið í huga mér frá því ég fékk versta kastið 1998 og lamaðist alveg vinstra megin. Það er hennar drifkraftur sem dreif mig fram úr þá og ég hugsaði "ég skal"!
Ég og maðurinn minn sögðum " þá nota ég bara hina hliðina"! Og það gerði ég í fyrstu. Svo lagaðist þetta að stórum hluta.
Vilborg Traustadóttir, 7.11.2008 kl. 13:39
Þú ert sterk og dugleg og allt...................það er svo notaqlegt að eiga svona systkini
Hulda Margrét Traustadóttir, 7.11.2008 kl. 13:53
Annars, var að hugsa þegar sálfræðingurinn minn talaði um að ég væri .........þori ekki einu sinni að tala um það að kannski erum við of hæversk og vantreystum okkur. Við eigum að nota það sem okkur var gefið og treysta innsæi okkar !
En stöndum saman !
Hulda Margrét Traustadóttir, 7.11.2008 kl. 13:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.