10.11.2008 | 10:33
Mánudagur...
Búin að fletta blöðunum sem ekki bera nema leiðinlegar og neikvæðar fréttir af þjóðarhag og ekkert að hafa í atvinnuauglýsingunm nema ef vera skyldi hjá Rauða torginu - ekki álitlegt.
Þá er það sjálfsbjargarviðleitnin sem þarf að koma til. Er enn að undirbúa mig - tilbúin með hugmynd en á eftir að ræða við mann og annan
"Það kemur dagur eftir þennan dag, dagur fyrir snauða og ríka" syngur Valgeir Guðjónsson í útvarpinu, gott lag og gaman hvað þjóðerniskennd þeirra sem stjórna tónlistaþáttum í útvarpinu núna er sterk. Mikið spilað af Íslenskum lögum. Gott mál. Og æðruleysislag með KK á eftir - ekki veitir okkur af !
Spakmæli dagsins:
Hatur, reiði og langrækni gerir
lífið leiðinlegt en kærleikur,
fyrirgefning og miskunn gerir
það aftur á móti skemmtilegt.
Gott að hafa þetta í huga þegar reiðin læðist aftan að manni og heldur fyrir manni vöku. Svo er gott að fara með æðruleysisbænina. Margt sem getur hjálpað ! Munum það !
Komandi vika verður okkur vonandi öllum góð, ég á von á góðri heimsókn, við Vilborg systir ætlum að skella okkur á myndlistarnámsskeið um helgina og halda svo áfram á eigin vegum eftir helgina !
Knús inn í daginn, sérstaklega til þeirra sem sitja heima með hendur í skauti og hugsa. Reynið að hugsa jákvætt og hlúið að því sem þið eigið - Það kemur dagur eftir þennan dag eins og söngvarinn söng svo fallega áðan
Athugasemdir
Gangi þér vel á fundinum. Stefni að því að koma á fimmtudaginn.
Vilborg Traustadóttir, 10.11.2008 kl. 20:32
Knús
Svanhildur Karlsdóttir, 11.11.2008 kl. 12:40
Ég gleymi alltaf að kíkja á bloggið eftir að ég hætti að blogga..
Gaman að lesa bloggið þitt
Vona að fundurinn hafi gengið vel..heyrumst seinnipartinn..
Knús..
Stella (IP-tala skráð) 11.11.2008 kl. 14:43
Takk dúllurnar mínar
Hulda Margrét Traustadóttir, 11.11.2008 kl. 15:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.