þriðjudagur............

Spakmæli dagsins úr dagatalinu góða:

Ef við hlífum börnum okkar við

öllu mótlæti á meðan þau eru

ung rænum við þau tækifærum

til að ná andlegum þroska til að

takast á við erfiðleika lífsins og

þau vonbrigði sem af þeim

hljótast síðar á lífsleiðinni.

Góður dagur, góður fundur, vonir í farvegi ! Allavega er ég búin að skila viku undirbúningsvinnu sem hugur minn hefur dvalið við öllum stundum síðan hugmynd þessari laust niður í kollinn á mér.  Finnst mér tímanum hafa verið vel varið, hvað sem útúr þessu kemur, annað hefur gleymst á meðan !

Það er þó gott mál.

Eigið góðan dag og takk enn og aftur þið sem gefið mér knús, hringið og gefið mér þannig "kikk" inn í daginn !

Knús til ykkar. Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Við sem höfum unnið hörðum höndum og gert okkar besta þurfum ekki að skammast okkar fyrir að vera íslendingar. Engin getur gert betur en svo. En þeir sem gerðu ísland gjaldþrota með kjánaskap og græðgi verða að víkja með góðu helst, en annars með illu. Látum ekki þessa rotþró sem stjórnar landinu komast lengra með okkur. Stopp. stopp. stopp.

Magnús hannibal (IP-tala skráð) 11.11.2008 kl. 16:39

2 Smámynd: Hulda Margrét Traustadóttir

Já, stopp þó firr hefði verið.

Hulda Margrét Traustadóttir, 11.11.2008 kl. 19:36

3 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Eru þau loks komin í ham! Ég lendi korter yfir ellefu á fimmtudagsmorguninn!

Vilborg Traustadóttir, 11.11.2008 kl. 21:06

4 Smámynd: Hulda Margrét Traustadóttir

Það kom að því systir -verst að við erum ekki öll hér samankomin um helgina, það hefðu orðið allsherjar systkinamótmæli á torginu - þögul að sjálfsögðu

Hulda Margrét Traustadóttir, 11.11.2008 kl. 21:25

5 identicon

Ragnar Snær er með ælupest þannig að ekkert varð úr símtalinu seinnipartinn..

Bjalla á morgun elsku mamma, dáist að dugnaði þínum..

Knús..

Stella (IP-tala skráð) 11.11.2008 kl. 21:54

6 identicon

Sæl Magrét mín. Hún Jóna sagði mér frá blogginu þínu og ég er búin að sitja í morgun og lesa færslurnar þínar. Þetta er verkefni sem þú ert að takast á við og klárar það sem fyrstu einkun, það veit ég

Nýttu tilfinningarnar og málaðu gullfallegar myndir og mundu að vinnan með sálfræðinginum verður þinn besti skóli og ein besta fjárfestingin þín

Knús, þín Auður

Auður Úa (IP-tala skráð) 12.11.2008 kl. 10:00

7 Smámynd: Hulda Margrét Traustadóttir

Takk Stella mín, vona að honum batni fljótt. Og gaman að heyra frá þér Auður Úa, kom og ætlaði að þakka þér fyrir samstarfið en þú varst í skólanum. Takk fyrir falleg orð

Hulda Margrét Traustadóttir, 12.11.2008 kl. 10:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband