Einn dagur enn....

Sit hérna í eldhúsinu mínu sem nú lítur eiginlega úr eins og skrifstofa, fullt af minnismiðum og dóti, fartölvan á borðinu og síminn hringir stanslaust. Ekki laust við að mér sé farið að líða eins og ég sé að mæta í vinnuna þegar ég kem fram á morgnana. Smile Hef allavega hundinn minn þegar ég kem fram til þess að bjóða góðan daginn. Eiginmaðurinn fer svo snemma að við lúrum aðeins áfram. Vonandi get ég bráðum sagt frá því hvað ég er að bralla.....

 

Ég er búin að biðja almættið fyrirgefningar á reiði sem réðist að mér í gær, ég var ill inní í mér og leið ekki vel, en er að vinna úr þeirri illsku sem á engan hátt á að fá ráðrúm til þess að ráðskast með mig - nei takk HeartStundum ræður maður bara ekki við þessar hugsanir sem læðast að manni og vilja setjast að. Gagnvart þessu líður mér betur í dag.

Heilræði dagsins:

Hamingjan er ekki glóandi

gull við enda regnbogans,

heldur felst hún í því að

heillast af fegurð hans.

Ekki amaleg skilaboð inní daginn.

Megið þið eiga góðan dag.Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Kem í fyrramálið með kinnarnar, vagúmpakkaðar! Heyrði í Kristínu og við ætlum að hittast á flugvellinum en hún kemur með sömu vél og ég. Fyndin tilbviljun!!!! :-)

Vilborg Traustadóttir, 12.11.2008 kl. 15:21

2 identicon

Þú átt hug minn allan

Alltaf að reyna að senda þér línu tekst bara ekki

hafðu það best nafna í borginni

Hulda (IP-tala skráð) 12.11.2008 kl. 23:33

3 identicon

Jibbý

Sko til það tókst ....

Fylgist með þér  þú ert svo skynsöm

megirðu eiga góðan dag. Gullið mitt

Hulda (IP-tala skráð) 12.11.2008 kl. 23:35

4 identicon

Gott að heyra í þér í gær

Stella (IP-tala skráð) 13.11.2008 kl. 09:59

5 Smámynd: Hulda Margrét Traustadóttir

Hæ Hulda Magga mín, takk fyrir þetta heimilistalvan var í við gerð er komin núna, ég hætt í vinnunni eins og þú hefur séð á blogginu og tapaði því email adressunni þinni. emailið heima er margr.tr@simnet.is

og á msn margrettr9@msn.com Verum endilega í sambandi frænka fyrst við fundum hvor aðra. Segið svo að bloggið sé ekki gagnlegt.

Stella mín, sömuleiðis. Ég er heppin hvað ég á góða að

Hulda Margrét Traustadóttir, 13.11.2008 kl. 10:11

6 identicon

Halló Akureyri !

Ég er búin að fylgjast með þér að undanförnu þ.e meðal annars atvinnumissinum.

Finn mikið til með þér en finnst þú líka taka þessu af einstakri skynsemi, gott að vita að þú átt góða að, bið að heilsa þér og þínum. Hafðu það alltaf sem best.

Þú ert mikil hetja

Hulda Magga

Hulda Margrét (IP-tala skráð) 14.11.2008 kl. 23:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband