18.11.2008 | 19:59
Þriðjudagur...
Mikið að gera í dag. Við systur fórum í verslunarleiðangur, aðallega til þess að versla fyrir hana mömmu okkar jólagjafir, sem hún ætlar að gefa barnabörnunum. Það gekk vel og við fórum svo og sóttum listaverkin okkar frá námskeiði helgarinnar.
Við stormuðum síðan niður á vinnustofu og munduðum penslana í gríð og erg fram undir kvöldmat.
Nú fer heimsókninni hennar Vilborgar að ljúka að sinni hún flýgur suður á morgun
En allt sem er gaman líður of fljótt, en vonandi endurtökum við leikinn sem fyrst.
Um helgina fæ ég svo Tinnu og Hrönn í heimsókn en þær ætla að vera hjá okkur á meðan pabbi þeirra skreppur til rjúpna, líklega fram á sunnudag
Spakmæli dagsins er:
Þótt nafn þitt komist í afrekaskrár
heimsins mun það aðeins verða
þar þangað til einhver ögn hraðari,
sterkari eða gáfaðri gerir betur.
Sýndu kærleika og hann mun
endast um eilífð.
Eigið góða nótt.
Athugasemdir
Knús
Svanhildur Karlsdóttir, 19.11.2008 kl. 09:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.