Flogin burt....

HeartÞá er Vilborg flogin til síns heima, þetta var frábær tími og ekki laust við einmannaleikatilfinningu þegar ég kom til baka af flugvellinum - engin til að spjalla við. Svo er það eitthvað svo gott líka að geta verið saman án þess að vera alltaf að tala, við lásum, spjölluðum, hlógum, elduðum og hvöttum hvor aðra í myndlistinni og öðru...við fengum líka góðar heimsóknir, Kristín elsta og besta vinkona Vilborgar var hér í bænum um helgina, og kom til okkar í mat og svo kom Kristjana "mín" aðeins í morgun en þær, hún og Vilborg voru saman einn vetur í Laugaskóla. Skemmtileg tilviljun.

Já, hvar væri maður staddur ef maður ætti ekki svona góða að Smile

Takk Vilborg fyrir ómetanlegan tíma - sem bætist nú í minningabanka málaralistarinnar og alls annars Wink Þér hefur farið mjög mikið fram og haltu bara ótrauð áfram !

Spakmælið: (á vel við í dag)

Öll sköpun Guðs sannar tilvist

Guðs - fullkomnun hennar,

skipulagning, samstilling,

samhljómur, eining og jafnvægi.

 

Eigið góðan dag Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Svanhildur Karlsdóttir

Alltaf gott að eiga góða að.....knús

Svanhildur Karlsdóttir, 20.11.2008 kl. 01:07

2 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Takk fyrir síðast og takk fyrir hvatninarorðin og knús á ykkur José og auðvitað líka á hann Dalí!!! Mímí var mjög ánægð þegar ég kom heim og mjálmaði m.a.s. sem er fátítt!

;-)

Vilborg Traustadóttir, 20.11.2008 kl. 01:47

3 Smámynd: Hulda Margrét Traustadóttir

Mími hefur aldeilis verið búin að sakna þín - knús til ykkar

Hulda Margrét Traustadóttir, 20.11.2008 kl. 11:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband