20.11.2008 | 17:18
Stutt í dag....
....
Spakmæli dagsins:
Það borgar sig að hlusta á
aðra. Sérhver einstaklingur veit
eitthvað sem þú veist ekki.
Er að undirbúa komu dótturdætra minna tveggja sem koma í kvöld.
Það verður gaman, önnur er 10 ára og hin 4.ára. Við ætlum aldeilis
að hafa það gott saman.
Lifið heil og njótið lífsins
Athugasemdir
Það verður stuð á bænum. Dalí tekur þá gleði sína á ný! Flott spakmæli.
Vilborg Traustadóttir, 20.11.2008 kl. 18:12
Dalí er ennþá vængbrotinn og horfir á mig ásökunaraugum, eins og ég hafi hrakið þig á brott. José fór með hann út núna til að hlaupa, vonandi verður hann þreyttur þegar "diddurnar" koma. Allt á kafi í snjó núna.
Hulda Margrét Traustadóttir, 20.11.2008 kl. 19:34
Já þetta er flott spakmæli....njóttu helgarinnar....knús
Svanhildur Karlsdóttir, 21.11.2008 kl. 12:22
Hva ekkert nýtt blogg???
Vilborg Traustadóttir, 21.11.2008 kl. 16:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.