Og sunnudagur........

Þá eru litlu systurnar farnar til síns heima, alltaf tómlegt á eftir.

Við gerðum okkur glaðan dagi í gær og fórum í "Jólahúsið" sem færði okkur jólastemmingu beint í æð og þaðan fórum við í "Minjasafnið" þar sem við skoðuðum gamla hluti og þar var á boðstólum hangikjöt og laufabrauð og ekki minnkaði jólahugurinn við það. Þaðan fórum við svo í "Ketilhúsið" þar sem nýbúar buðu uppá heimsókn í þeirra jólastemmingu með stofum frá mörgum löndum og gestir fengu að smakka á kræsingum frá hverju landi fyrir sig. Við komum heim í jólaskapi og bjuggum til súkkulaði með rjóma.

Í gærkveldi var svo kósý kvöld og smá nammi.

Í morgun fórum við á vinnustofuna og þær systur máluðu hvor sína mynd.

Skemmtileg heimsókn og allar slíkar líða svo hratt Heart

Spakmæli dagsins:

Biddu Guð að staðfesta ákvarðanir

þínar. Hann getur forðað þér frá

mistökum, sýnt þér hverju þú ert

að gleyma, gert góðar hugmyndir

að frábærum og gefið þér þá fullvissu

og sjálfstraust sem þú þarfnast til

að halda áfram.

Megið þið eiga góðan sunnudag Smile


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Þið hafið átt góða daga saman. :-)

Vilborg Traustadóttir, 23.11.2008 kl. 15:14

2 identicon

Ohhhhh..okkur langar svo norður í jólafílinginn..

Stella (IP-tala skráð) 23.11.2008 kl. 20:25

3 Smámynd: Hulda Margrét Traustadóttir

Stella, Þá er bara að drífa síg....

Hulda Margrét Traustadóttir, 24.11.2008 kl. 11:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband