24.11.2008 | 23:07
Stór spurning.....???
Ég stend frammi fyrir stórri spurningu.
Málið sem ég hef verið að reyna að koma í höfn er fyrirtæki sem er nú ekki af minni gerðinni.
Norðurport (hið Norðlenska kolaport). !!!!
Já, ég get fengið gott húsnæði tímabundið að vísu en ég er samt að hugsa um að skella mér í þetta dæmi. Ég þarf að hafa hraðar hendur ef ég ætla að koma þessu á koppinn í desember.
Ég hef setið við að undirbúa málið undanfarnar vikur, talað við fjölda manna, kannað grundvöll, gengið á fund bæjarstjóra með bréf varðandi málefnið og leitað úrlausna til fjármögnunar.
Í kvöld ákvað ég að senda inn auglýsingu í dagskrána á miðvikudaginn og athuga hvort fólk muni panta sér bása. Ef undirtektir reynast viðunandi mun ég skella mér af stað.
Hvað haldið þið svo ? Að ég sé á réttum stað á réttum tíma ?
Mín tilfinning er sú að ef þetta gengur ekki núna - þá gengur það aldrei.
Með þessu væri blásið einhverju nýju inn í bæjarfélagið á þessum síðustu og verstu ! Ekki bara fyrir bæinn okkar heldur líka fyrir Norðurlandið allt.
Nú verð ég að bíða og sjá hvað gerist - verður grundvöllur fyrir slíku hér ?
Fer að sofa og hugsa eins og ég hef gert undanfarin kvöld og ég get bara ekki losnað við þetta verkefni úr huganum síðan mér datt þetta í hug.
Allavega hef ég haft nóg um að hugsa síðustu dagana og ekki legið í eymd og volæði atvinnuleysisins....það er þó kostur
Megið þið eiga góða nótt
Athugasemdir
Mér líst vel á þetta, þetta er flott hugmynd hjá þér Knús
Svanhildur Karlsdóttir, 25.11.2008 kl. 09:30
Mér finnst þetta mjög góð hugmynd og tel að margir munu bæði selja og kaupa ... mig myndi langa að hafa svona matarhorn þar sem góðar húsmæður selja það sem ég get ekki búið til.
kv,
Auður
Auður Úa (IP-tala skráð) 25.11.2008 kl. 11:29
Takk. Auður það er aftur verra með matvælin þar sem Heilbrigðiseftirlitið er með nokkuð skírar reglur þar, þegar mörgu ægir saman en það er hægt að selja innpökkuð matvæli og frostvöru að fengnu leyfi hvers og eins..
Hulda Margrét Traustadóttir, 25.11.2008 kl. 14:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.