Góður dagur...

...margar fyrirspurnir og bókanir, fólk er glatt og bjartsýnt og þakkar framtakið. Þær vörur sem nú er búið að bóka í bása og á borð eru mjög fjölbreyttar og þetta er mjög svo spennandi !

Mikið er ég glöð að loknu dagsverki, svo verður haldið áfram á morgun, með kynningu og athuganir á ýmsum hlutum sem þurfa að komast á hreint Smile En þetta hefur verið langur vinnudagur en afar gleðilegur. Takk öll sem hafið haft samband á einn eða annan hátt.

Ég var í viðtali við DV og svo er komin frétt um þetta á huni.is og siglo.is. Enda er markaðssvæðið stórt. Frekari kynning væntanleg.

Ég sé að mikið hefur verið komið inná síðuna í gær og í dag, takk fyrir það en gaman væri ef einhverjir vildu tjá sig um málið Wink

Bjartsýni ríkjandi í mínum herbúðum ! Smile

Megið þið eiga góða nótt. Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju systir með þetta frábæra framtak. Maður verður að skella sér norður sem fyrst til að upplifa stemminguna. Áfram Norðurport.

Magnús Hannibal (IP-tala skráð) 27.11.2008 kl. 22:37

2 Smámynd: Hulda Margrét Traustadóttir

Takk. Já, og hægt að nota tækifærið og koma hlutum í verð. Þið Vilborg verðið að koma með aftaní vagn með málverkum og öðru góssi

Hulda Margrét Traustadóttir, 28.11.2008 kl. 07:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband