1.12.2008 | 07:19
Mánudagur...01.12.2008
Góðan daginn ! Og gleðilegan fullveldisdag.
Fyrst spakmæli dagsins:
Ávarpaðu fólk með nafni
það hljómar eins og tónlist í
eyrum þess og sýnir að þér
þykir vænt um það.
Það var hryssingslegt úti áðan, skrapp með hann voffa minn út að hreyfa sig. Það snjóar aðeins.
Er með langan lista yfir það sem ég þarf að gera í dag. Það verður strikað út jafnóðum þegar líður á daginn.
Býð velkomin nýjan bloggvin magnuss. Hann er Austfirðingur og sjálfmenntaður í myndlist að eigin sögn, væri gaman að sjá myndir eftir hann. Það var gott að búa á Austurlandi og þar býr gott fólk, það reyndi ég. Bjó um nokkurra ára skeið þar, um tíma á Egilsstöðum og síðan á Reyðarfirði.
Eigið sem bestan dag og njótið lífsins
Athugasemdir
Gott að heyra að allt gangi vel, ég var í sveitinni um helgina (tölvulaus), yndisleg afslöppun, knús
Svanhildur Karlsdóttir, 1.12.2008 kl. 10:56
Bloggvinir eryu góðir og dýrmætir vinir. Vinátta er ómetanleg.
Vilborg Traustadóttir, 1.12.2008 kl. 17:21
Sæl Hulda, þakka þér fyrir spakmæli dagsins. Það hittir í mark, það er sagt að maður fái skilaboðin alltaf úr tveimur áttum. Ég er einmitt að lesa kafla í bók Dale Carnegie um hvað það er mikilvægur þáttur í að gleðja aðra með því að muna eftir nafninu þeirra og láta þá finna það.
Magnús Sigurðsson, 1.12.2008 kl. 23:09
Já, ég hef nú tekið eftir þessu sjálf að mér finnst gott þegar fólk kemur nafninu manns að
Hulda Margrét Traustadóttir, 2.12.2008 kl. 07:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.