2.12.2008 | 07:21
2. desember....
Góðan daginn.
Er sest við að setja inn upplýsingar á heimasíðu Norðurports, sem nú er í smíðum. Verður vonandi tilbúin fljótlega, þá verður hægt að panta bása/borð þar í gegn sjá verð og ýmsar upplýsingar. Kemur líklega til með að létta eitthvað á símanum.
Ég reddaði því í gær að ég get boðið upp á safa og kex á laugardaginn, allir voðalega almennilegir við mig ! Svo fáum við ljúfa tóna frá harmonikkuleikara frá kl.13 til 13:30.
Dagurinn í gær var alveg hræðilega fljótur að líða og verkefnin í dag eru mörg. Ég geng með bók og minnislista til þess að eitthvað klúðrist nú ekki.
En þetta mjakast allt. Gaman hvað allir eru jákvæðir. Það lítur út fyrir að laugardagurinn verði mjög líflegur og sunnudagurinn líka. Er að senda auglýsingu í Dagskrána á eftir.
Spakmæli dagsins í dag:
Undir handleiðslu Guðs
má framkvæma erfiða hluti
samstundis en hið ómögulega
tekur aðeins lengri tíma.
Áður en við vitum af verða komin jól og þegar ég byrjaði að hugsa um þetta fyrirtæki, gleymdi ég samstundis því sem ég var komin vel af stað með - skápaþrifum og fleiru í þeim dúr, en mér gefast nú örugglega einhverjar stundir í það þegar allt verður komið í gang. Það verður öðruvísi að vinna um helgar en það er líka bara gaman að breyta til
Megið þið eiga góðan dag
Athugasemdir
Það er verið að opna svona Kolaport í Hafnarfirði sá ég auglýst í Fréttablaðinu.
Gangi þér vel.
Vilborg Traustadóttir, 2.12.2008 kl. 12:03
Vonandi gengur þetta framtak hjá þér vel. En svona aðeins til að minna á: þá eru jólin ekki inni í skáp og þau koma hvort sem skáparnir eru hreinir eða ekki. Njóttu aðventunnar og nýja verkefnisins!
Drífa Þöll (IP-tala skráð) 2.12.2008 kl. 12:40
Uppeldið Drífa mín - man ekki öðruvísi jól á Sauðanesi en að allt hafi verið gert hreint frá A til Ö.
Maður man það sem fyrir manni er haft
Vona svo sannarlega að vel gangi hjá Hafnfirðingunum Vilborg.....
Það er einhver vakning í gangi - engin yfirbygging - engin ofurlaun !
Hulda Margrét Traustadóttir, 2.12.2008 kl. 20:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.