Upp er runnin fimmtudagur....

 

Spakmæli dagsins:

Betra er að leita að lausn

vandans frekar en að kenna

einhverjum um hann.

Mig dreymdi skrítin draum í nótt. Ég var að ganga upp fjall, það var mikill snjór og erfitt yfirferðar. Þá mætti ég ókunnum manni sem sagði " Ef þú ert þreytt skalt þú hvíla þig vinan" og hann hjálpaði mér að setjast, setti utanum mig teppi og stóð hjá mér. Ég sagði " Ætti ég kannski ekki að halda áfram, mér lýst ekki alveg á færðina"? Svarið var " Auðvitað kemstu alla leið, það er mikið betra færi hér fyrir ofan okkur, ég skal labba með þér".

Meira man ég ekki úr þessum draumi nema að það var kalt en mjög fallegt veður, mikil birta á himni.

Annað:

Held áfram að undirbúa helgina, sæki lánsborðin í dag og sé þá hvernig þetta kemur út. Er með fiðrildi í maganum, er að vona að þessi borð dugi, annars verð ég að grípa til einhverra úrræða. Finnst samt að þessi draumur boði nokkuð gott og allt gangi þetta upp.

Ég er eiginlega búin með að setja inn á heimasíðuna hjá Norðurporti, það vantar þó ennþá að hægt verði að panta þar í gegn en það kemur.

 http://nordurport.is

Njótið dagsins Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er merkilegur draumur og ég er sannfærð um að hann merkir að mestu erfiðleikarnir séu að baki. Gani þér vel!

Drífa Þöll (IP-tala skráð) 4.12.2008 kl. 15:45

2 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Þú hefur mætt Brad Pitt á niðurleið eftir að ég stakk hann af í mínum draumi í fyrrinótt! Sjá á minni bloggsíðu færslan Brad Pitt - alveg draumur...... ;-)

Vilborg Traustadóttir, 4.12.2008 kl. 18:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband