Föstudagur...

....púff, hvað vikan hefur liðið hratt. Listinn í dag er langur og get í raun ekki byrjað firr en eftir kl.12:00. En ýmis símaerindi gat ég klárað.

Ég á eftir að þvo ein 50. borð fá 20. spónaplötur, sækja pappírsdúka á þau, fara í heilbrigðiseftirlitið eftir leyfinu og sækja veitingarnar sem okkur voru gefnar í tilefni dagsins. Klára að þrífa og setja dúka á borðin. Svo kemur útvarpið í heimsókn klukkan 15:00.....vonandi endist mér dagurinn í allt þetta. Hef svo sem ekki beðið neinn um hjálp en ef einhvern sem les þetta langar virkilega til að taka til hendinni...þá væri ekki hægt að slá hendinni á móti því. Wink

Það eru miklar draumfarir á mér eitthvað núna. (ekki svefnfriður).

Mig dreymdi í nótt að ég sæi stór hús fara af grunni sínum og svífa upp í loftið. Ég var með Vilborgu systur og þegar ég sagði henni þetta sagði hún." Æi, ertu nú farin að fá ofskynjanir aftur" (ég hef aldrei séð neitt svoleiðis) En þetta var skrítið og mér leið eins og ég svifi á skýi og gæti ekki snert jörðina.

Svo kom martröðin, fullt af æpandi konum að skamma mig fyrir að hafa ekki staðið mig nógu vel í undirbúningi og þeim fannst allt ómögulegt og þegar ég spurði þær hvort þær hefðu ekki selt vel, æptu þær á mig " VIÐ SELDUM EKKI EINN HLUT" Og ég vaknaði frekar sveitt !

Vonandi eru þetta ranghverfir draumar, hef ekki tíma til að fletta þeim upp.

Enn spakmælið dagsins má ekki vanta:

Guð vill blessa þá sem treysta

ekki á sjálfan sig og vita að þeir

þurfa á honum að halda. Hann

getur ekki hjálpað þeim sem finna

ekki löngun til þiggja hjálp hans.

Megið þið eiga sem bestan dag, veit ekki hvort ég skrifa meira hér firr en á sunnudag.

En á meðan Heart Krossum fingur fyrir góðu gengi á morgun, þarf svo sannarlega á ykkar góðu hugsunum að halda.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Þetta er ábyggilega fyrir góðu. Þú munt líða um í sæluvímu sem á skýi eftir helgina. Einhverjir reyna þó að halda þér niðri á jörðinni.

Að dreyma systur sína er oft fyrir rifrildi en þar sem nafnið mitt þýðir "traust sem virki" munt þú hrinda árásinni. Ágreiningurinn mun ekki ná yfirhöndinni heldur mun hann styrkja stöðu þína.

Snúast þér í hag.

Þetta verður svona eins og að skvetta vatni á gæs!!!!

Vilborg Traustadóttir, 5.12.2008 kl. 11:16

2 Smámynd: Hulda Margrét Traustadóttir

Aha, fyrst þú segir það...trúi ég því

Hulda Margrét Traustadóttir, 5.12.2008 kl. 11:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband