Að áliðnu kvöldi...

.....einu sinni var ég að gera skapandi hluti í leiklist og að semja ljóð og annað efni.

Að áliðnum degi, kom ég heim eftir opnun Norðurports. Þetta var eins og nokkurskonar frumsýning. Mér líður vel, því dagurinn var vandræðalaus og allt sölufólkið eins og hugur manns. Perlur, öll saman.

Í stuttu máli, heppnaðist allt vel, fullt út úr dyrum frá opnun til loka og allir sælir og glaðir með daginn.

Ég fékk yndislega gjöf frá sölufólkinu öllu í dag og fallegt kort. Einnig blóm og fallegt kort frá elskulegum tengdaforeldrum dóttur minnar.

Ég sem vissi ekki í gær hvaða fólk ég ætti eftir að hitta í dag, aðeins fengið pantanir frá því í síma. En það sannaðist að ef þú hefur eitthvað að gefa, færð þú það endurgoldið. Frábært fólk á gólfinu í dag og flestir verða aftur á morgun að viðbættum nokkrum nýjum.

Harmonikkuleikarinn sem spilaði fyrir okkur í klukkutíma í dag, falleg íslensk lög kom eftir það og sagði. "Ég gef mína vinnu, þetta er nýtt fyrirtæki og við ný fyrirtæki vil ég styðja". Flottur Jón Hrólfsson, takk.

Ég á ekki orð.

Spakmæli dagsins á morgun er:

Lýstu upp daginn með

geislum þakklætis.

Gátu nú ekki verið betri skilaboð inn í dag tvö í Norðurporti. Happy

Nú er komin tími á svefn, best að safna kröftum fyrir morgundaginn.

Megið þið eiga góða nótt Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Flestir fá 1-2 frábærar hugmyndir á dag. En bestu hugmyndir verða aldrei stærri en heilafruma ef þeim er ekki hrint í framkvæmd.

Magnús Sigurðsson, 7.12.2008 kl. 10:56

2 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Æðislegt, það er gaman að þetta gengur svona vel. Til lukku!!

Vilborg Traustadóttir, 7.12.2008 kl. 11:07

3 Smámynd: Hulda Margrét Traustadóttir

Takk, dagur tvö frábær og fullt alla næstu helgi sýnist mér !

Hulda Margrét Traustadóttir, 7.12.2008 kl. 19:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband