Dagur 2, Norðurport....

...ég er þreytt en mjög ánægð með daginn. Frábærar nýjar vörur komu inn í dag og margir gestir.

Það er varla hægt að lýsa þessu, það er mikil gleði í sál minni og sinni.

Næsta helgi er fullbókuð og stefnir í að bæta þurfi við borðum.

Tek nú hvern dag í einu eins og áður og skipulegg hvernig næsta helgi kemur til með að vinnast. Biðlistinn er komin í gang !

Takk, bara öll sem unnuð með mér þessa helgi og líka öll hin sem haldið áfram um næstu helgi, án ykkar væri þetta vonlaus barátta ! Svo verður gaman að hitta þá sem koma nýir inn og sjá þeirra vörur.

Það var frábært að fá listakonuna Laufeyju Skúladóttur frá Stóru Tjörnum og bróðurdóttur hennar hana Hrönn. Þær hafa verið að hanna saman. Þær slógu í gegn með þæfðu ullarvörurnar sínar, ásamt öllum hinum sem voru með nýtt handverk, frábærar vörur, eigin hönnun og innfluttar vörur og endurnýtanleg föt, handmálaða listmuni, handmáluð kerti og svo mætti lengi telja. Kynningarnar allar, flottar og sama hvert maður leit, nýjar leirvörur, glervörur, kort og hvað sem var - Það gladdi mig að fá nunnurnar með sitt litla borð. Svo kom fjölskylda sem var að flytja og það var sniðugt hjá þeim að koma með allt það sem annars hefði farið í ruslið en því ekki að lofa frekar öðrum að njóta fyrir lítinn pening ?. Flott samsettning þetta !

Til hamingju sölufólk í Norðurporti, þið kunnið svo sannarlega ykkar fag, þið voruð flott, ÖLL SEM EITT ! Takk fyrir það.

Ég hitti í gær mann sem var með hugmynd að vörum sem mig langar mikið til að komi inn, harðfisk og hákarl, það fer í athugun. Svo er ég að vona að hugmynd mín um smá kaffitorg verði að veruleika, það er líka í athugun. Svona þróast þetta smátt og smátt.

Á morgun upphefst könnun hjá mér um borðafjölda fyrir næstu helgi, allt að verða fullt og mig vantar greinilega fleiri borð......."hugs" "hugs".................

Á morgun mánudag ætla ég að reyna að hvíla mig smá en mæti samt í nýja Sprotasetrið til að kynna mér hvað ég get gert þar með mér fróðari mönnum/konum um markaðsmál og allt og allt...ég er mjög spennt fyrir því. Svo ætla ég að sinna heimilinu mínu smá því hér þarf líka að taka til hendinni.

Kem með spakmæli mánudagsins á morgun og sennilega ekkert annað !

Eigið góða nótt og ég óska ykkur góðrar vinnuviku Heart Sleeping

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Frábært. Greinilega það sem þarf nú á tímum. Til hamingju meðopnunina og helgaráragnurin.

Vilborg Traustadóttir, 7.12.2008 kl. 21:33

2 Smámynd: Svanhildur Karlsdóttir

Til hamingju Magga mín, duglega stelpa.......knús

Svanhildur Karlsdóttir, 8.12.2008 kl. 10:23

3 Smámynd: Hulda Margrét Traustadóttir

Takk, dúllurnar mínar !

Hulda Margrét Traustadóttir, 8.12.2008 kl. 11:11

4 identicon

Til lukku með þetta alltsaman elsku mamma

Stella (IP-tala skráð) 8.12.2008 kl. 12:17

5 Smámynd: Hulda Margrét Traustadóttir

Og takk Stella mín. Saknaði fjölskyldunnar minnar um helgina !

Hulda Margrét Traustadóttir, 8.12.2008 kl. 12:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband