9.12.2008 | 19:40
Dagur 1.
Gekk vel, það var tekið mjög vel á móti mér og mér gafst næði til að undirbúa helgina.
Telja saman bása og borð, gera lista yfir það allt saman og skrifa út kvittanir og fá smá yfirsýn yfir í hvað stefnir. Er búin að leggja drög að fleiri borðum, því það verða fleiri sölumenn þessa helgi en síðustu, sér í lagi á laugardaginn. Þannig að það komast ekki fleiri fyrir þann daginn.
Svo barst mér svo falleg blómasending og kort inn á borð til mín í dag, alltaf hægt að koma manni á óvart og slíkt yljar sko heldur betur um hjartaræturnar. Takk Vilborg systir mín
Vonast eftir frábærri mætingu aftur í Norðurportið, enda úrval af fallegri gjafavöru á góðu verði.
Við ætlum í félagi við strákana sem eru með diskamarkaðinn í hinum helmingi hússins að reyna að gera eitthvað skemmtilegt fyrir börnin - jólasveinar, hmm, kemur í ljós !
Það kemur dagur eftir þennan dag. Njótið kvöldsins, það ætla ég að gera og safna kröftum
Athugasemdir
Ég kíkti í Norðurport og ætlaði að heilsa upp á þig en því miður fann þig ekki, kannski næst. Enn og aftur til hamingju með frábært framtak
Huld S. Ringsted, 9.12.2008 kl. 20:05
Ég var svona eins og hálfgert jójó, útum allt og þurfti svo að skreppa frá í smástund en var annars þarna allan daginn.
Þú verður bara að koma aftur um helgina Það verður líflegt !
Hulda Margrét Traustadóttir, 9.12.2008 kl. 20:36
En, takk Huld. Gaman að þú komst
Hulda Margrét Traustadóttir, 9.12.2008 kl. 20:37
Ekkert að þakka, bara gaman....
Vilborg Traustadóttir, 9.12.2008 kl. 22:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.