10.12.2008 | 20:08
Enn um Norðurportið...
Kláraði í dag að skipuleggja helgina, fékk fleiri borð og ég held að þetta gangi allt upp !
Það hafa margir hringt, en það hringdi í mig kona áðan, sem ætlar að selja í Norðurporti um helgina, hún ætlaði fyrst bara að vera á laugardaginn en ákvað svo að koma líka á sunnudaginn. Hún var að vandræðast með vörurnar sínar, hvernig hún gæti skipulagt það að koma þeim inn um helgina. Hún er ekki heilsugóð en vildi samt vera með allt klárt klukkan 11:00 á laugardaginn eins og sönnum Íslendingi sæmir. Ég sagði henni auðvitað að hafa ekki áhyggjur, ég skyldi hjálpa henni að koma þessu öllu inn á laugardagsmorgun snemma svo þetta yrði allt í lagi.
Þá rann upp fyrir mér ljós. Nokkrar þessara kvenna, sem geta föndrað heima hjá sér, en eru of miklir sjúklingar til þess að stunda vinnumarkaðinn eru á meðal sölumannanna. Þær eru sem sagt að reyna að drýgja aumar tekjur sínar með því að koma og selja það sem þær geta þó gert heima fyrir í rólegheitunum.
Ég tek hatt minn ofan fyrir slíku fólki og sér í lagi þegar sagt er við mig " Ég bíð spennt eftir laugardeginum, ég er ein heima alla vikuna og það er svo gaman að koma og hitta annað fólk og spjalla" Þessi orð snertu streng í hjarta mínu, og ég hugsaði, mikið er gott að fólk hefur þessa hugsun, sem er bæði sú að fólk er að bjarga sjálfu sér aðeins fjárhagslega, ef vel gengur og í leiðinni að hjálpa öðrum, selja ódýrt og njóta þess að hitta annað fólk. Þetta fólk drífur sig upp úr einangruninni (oft með miklu hugarfarslegu átaki) og kemur út á meðal annarra. Hvað er betri lækning við einsemd ? Ég bara spyr. Það eru svo margir góðir fletir á þessu Norðurporti, ég er alltaf að finna það betur og betur hvern dag.
Það verður gaman á laugardaginn. Allt í bland, nýtt og notað og vonandi eitthvað gott í gogginn líka.
Dagurinn á morgun fer í frekari undirbúning og það er skemmtileg helgi framundan.
Sofið rótt kæru lesendur þessarar síðu
Athugasemdir
Ja Magga!
Ég segi nú bara að banki sem hefur efni á að missa slíkan starfskraft sem þig er varla á fæðiskeri staddur?
Eða????
Vilborg Traustadóttir, 10.12.2008 kl. 21:12
Mikið er ég ánægð að heyra hvað allt gengur vel......Knús duglega stelpa
Svanhildur Karlsdóttir, 10.12.2008 kl. 23:06
Gaman að heyra hvað allt gengur vel.
Góða skemmtun um helgina.
Anna Guðný , 11.12.2008 kl. 00:06
Mikið eruð þið elskulegar. Takk. Mér finnst svo gaman að stússast í þessu, auðvitað er þetta mikil vinna en mjög svo gefandi. Svona er það Vilborg, þegar ein hurð lokast opnast önnur. Maður verður að bjarga sér, ég er svo ánægð með að láta mér detta þetta í hug
Hulda Margrét Traustadóttir, 11.12.2008 kl. 06:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.