15.12.2008 | 07:11
Mánudagsmorgun...
Góðan daginn !
Góð og annasöm helgi að baki. Dagurinn í gær þó aðeins rólegri en laugardagurinn, en samt fínn.
Sölufólkið ekki alveg eins margt en samt með fjölbreyttar vörur og það var skemmtileg stemming. Við Tinna vorum í Norðurporti í allan dag en hún fór svo heim með afa sínum uppúr fjögur til þess að elda matinn svo við gætum borðað áður en hún tæki flugið heim. Við rétt náðum þessu á hlaupum.
Það var sæl stúlka sem hélt heim á leið í kvöld með litlar gjafir í farteskinu til fjölskyldu sinnar. Það var gaman að sjá hvað hún var áhugasöm um alla hluti og hjálpsöm við fólkið. Að bera inn poka og pinkla og sendast fyrir mig og jafnvel leysa af í uppáhaldsbásnum sínum - þar sem allir flottu skartgripirnir voru seldir
Nú tekur við undirbúningur fyrir næstu helgi og mikið búið að bóka. Það verður opið líka á föstudaginn frá kl. 13 - 19 og svo á laugardag og sunnudag. Líklega verðum við allavega til kl. 18:00 þá daga. Helgina milli jóla og nýárs er áætlað að hafa opið líka. Svo áfram heldur fjörið. Ég ætla að reyna að undirbúa jólin okkar hér heima bara eftir næstu helgi og e.t.v. eitthvað smá í vikunni ef tími gefst.
En spakmælið má ekki gleymast:
Himnaríki er staðurinn þar
sem öllu ranglæti er snúið í
réttlæti.
Eigið góðar stundir þar til næst og njótið dagsins
Athugasemdir
Gaman að flygast með Norðurports-ævintýrinu. Gangi þér vel.
Magnús Sigurðsson, 15.12.2008 kl. 07:52
Takk
Hulda Margrét Traustadóttir, 15.12.2008 kl. 15:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.