16.12.2008 | 10:35
Jólin nálgast....
...það styttist í blessuð jólin. Það er svo gott þegar þau koma og brjóta upp hversdagsleikann og fólk getur hvílst og glaðst hvort með öðru.
Var að skila Norðurports auglýsingunni og láta vita um breyttan opnunartíma um næstu helgi og fleiri breytingar eins og Kaffi Norðurport og Geislabandið sem ætlar að spila eftir hádegi á laugardag. Nánar um helgarplanið á http://nordurport.is undir flipanum fréttir.
Annað: Ég er svolítið skelkuð fyrir hönd frænda míns Jóns Bjarka Magnússonar blaðamanns á DV sem kom fram í Kastljósi í gær með hljóðupptöku af samtali hans og ritstjórans vegna greinar sem Jón Bjarki vildi birta. Ég er mest skelkuð yfir því að þessi ungi efnilegi maður geti nú ekki gengið í friði um götur. Þarna kom ýmislegt fram sem vekur manni ugg. Munum að við þurfum að gæta hvors annars.
Spakmæli dagatalsins er í lengra lagi, set það hér inn.
Til þess að hreinsa gull
þarf það að fara í gegnum
bræðsluofn. Á sama hátt
leyfir Guð okkur að fara
gegnum þjáningar og
andstreymi til að hreinsa
hjörtu okkar.
Njótið dagsins.
Athugasemdir
Gætum hvors annars og sérstaklega unga fólksins þeim er ætlað að bera þyngstu byrðarnar.
Magnús Sigurðsson, 17.12.2008 kl. 08:02
Ég hitti á dögunum unga konu sem er að byrja sinn búskap. Henni leið svo illa yfir ástandinu að hún gat ekki talað um það. Já það er mikið á unga fólkið lagt.
Hulda Margrét Traustadóttir, 17.12.2008 kl. 10:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.