18.12.2008 | 07:22
Gömlu jólavinirnir....
Góðan daginn.
Það er árla morguns og ég er að leggja drög að deginum.
Ég hef nefnilega ákveðið að taka til hendinni hér á heimilinu þangað til ég mæti í Sprotasetrið eftir hádegið. Í kvöld förum við Sólveig svo að gera klárt "Kaffi Norðurport".
Ég komst jólaskap í gær þegar ég loksins setti greni á svalahandriðið hjá okkur og kveikti á jólaseríu. Á eftir Þegar ég verð búin að þvo glugga og gólf , ætla ég á stefnumót við gamla jólavini mína sem geymdir eru vandlega innpakkaðir í geymslunni, taka eitthvað af glingri hér inni úr umferð í staðin til að búa til pláss og stilla þeim upp, hverjum af öðrum, jólapúkunum mínum. Gömlum og lúnum og öðrum nýrri. Þar kennir ýmissa grasa, bæði í kertastjökum, sveinum og öðru glingri. Það er alltaf skemmtilegt að hitta aftur þessa gömlu kunningja sína
Upp skulu jólagardínur í eldhús og annað eftir því.
Ég verð að segja ykkur að ég fór í skemmtilega heimsókn í gær. Ung stúlka sem er nýbyrjuð í Myndlistarskóla Arnar Inga var að afhjúpa sína fyrstu stóru mynd fyrir fjölskyldu sinni og ég tróð mér í hópinn þar sem "fugl" hvíslaði að mér að þetta yrði ég að sjá. Það var reglulega gaman að sjá viðbrögð fjölskyldunnar og þarna er greinilega á ferð mjög efnilegur nemandi. Kvöldið rifjaði upp gleðina af því þegar ég var í skólanum og upplifði þá ánægju að nema af honum Erni Inga. Það voru yndisleg ár sem ég minnist með mikilli gleði og ég er ennþá að elta uppi stutt námskeið sem hann heldur, því þau gefa manni svo mikið. Til hamingju Eyrún Takk fyrir mig kæra fjölskylda.
Þá er að kíkja á spakmæli dagatalsins í dag.
Guð kann að meta auðmýkt
þína. Það gera vinir þínir og
vinnufélagar einnig.
Njótið dagsins og látið ykkur hlakka til jólanna
Athugasemdir
Magnús Sigurðsson, 18.12.2008 kl. 09:00
Það hefur sést í iljarnar á þér upp um borð og bekki við að skreyta! :-)
Vilborg Traustadóttir, 18.12.2008 kl. 16:52
Er viss um að það er allt orðið glansandi fínt hjá ykkur
Stella (IP-tala skráð) 19.12.2008 kl. 08:20
Hm, mesta furða eftir að hafa farið eins og hvítur stormsveipur um íbúðina í gærmorgun, tók svo skurk í morgun líka Af nógu að taka !
Hulda Margrét Traustadóttir, 19.12.2008 kl. 09:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.