19.12.2008 | 08:42
Nýr dagur...
Fyrst spakmæli dagatalsins í dag sem er:
Ánægður maður nýtur útsýnisins
þótt hann verði að fara krókaleiðir.
Ég er nokkuð ánægð með dagsverkið í gær og sé fram á hugguleg jól hjá okkur hjónakornunum. Þó ég verði lítið heima firr en á mánudag verður þetta bara fínt. Ég bað sjálfa mig um frí á mánudag og þriðjudag og held að það gangi að mestu, þarf bara að skjótast í bankann á mánudaginn og fer ekki á skrifstofuna firr en eftir jólin. Þá verður nógur tími til að klára rest.
Er í umræðum við nýja eigendur húsnæðisins þar sem Norðurport er og hef nokkuð góða von um áframhaldandi veru þar Kemur í ljós. Kaffi Norðurport kemur bara vel út og við Sólveig kláruðum að gera allt klárt fyrir það í gærkveldi.
Nokkrar skemmtilegar nýjungar koma inn um helgina og það er ánægjulegt að Plastiðjan Bjarg, Iðjulundur kemur til okkar á laugardaginn og selur kerti og fleira fallegt og kynnir sína starfsemi. Svo verða t.d. til sölu pólskar jólakúlur og einnig pelsar...í bland við svo margt annað skemmtilegt. Eins og áður, gamalt og nýtt en þó fleira af nýjum hlutum. Einnig koma Laufey og hún Hrönn með þæfðu ullarvörunar sínar, Telma með skartið fína, Sísí með sínar ullarvörur, hárskraut ásamt fleiru, t.d. sparksleðana vinsælu. Sigrún með leirvörurnar og fínu húfurnar. Bára með mokkavörurnar, Rósa með glervörunar og Helen með sitt skart og jólahjörtun flottu. Snyrtivörurnar verða á sínum stað, einnig harðfiskurinn og hákarlinn frá Darra og svona mætti lengi telja.
Þannig að við búumst við mikilli umferð hjá okkur um helgina.
Njótið áfram undirbúnings jólanna, þar til næst hafið það gott
Athugasemdir
Gangi ykkur vel um helgina
Huld S. Ringsted, 19.12.2008 kl. 09:23
Svo þú ert bara báðum megin við borðið! Hvernig tilfinning er það? ;-)
Vilborg Traustadóttir, 19.12.2008 kl. 17:05
Þú meinar báðu megin við borðið, frábær tilfinning. Enda búnin að vinna eins og berserkur síðustu fimm vikurnar, en það er greinilega ekkert upprof....ætla samt að leyfa mér þessa tvo daga + jól....geggjað !
Hulda Margrét Traustadóttir, 19.12.2008 kl. 22:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.