Jólunum bjargað.....með skötunni.....

....er búin að fá rjúpur, og með þeim verður hin ómissandi bláberjasulta frá henni mömmu og auðvitað brúnaðar kartöflur og hin frábæra rjúpna soðs sósa í matinn á aðfangadagskvöld . Ég Verslaði svo í Norðurporti í dag, harðfisk frá Darra Grenivík og hákarl og svo punktinn yfir iið SKÖTU, sem ég elda að Vestfirskum sið á Þorláksmessu. Og ég bý líka svo vel að eiga vestfirskan hnoðmör með skötunni, einnig frá henni mömmu geymda í frysti og þá geta jólin komið.

Mér er meira sama um kökur og konfekt en skata á Þorláksmessu og rjúpur á aðfangadagskvöld + hangikjöt frá Kjarnafæði á jóladag með góðu laufabrauði og uppstúf, nammi nammmm.

Vegna uppruna mannsins míns sem er Portúgalskur erum við oftast með góðan saltfiskrétt á annan í jólum. Það er sagt að portugalir eigi yfir 300 uppskriftir af saltfiskréttum og það sem minn maður hefur eldað úr saltfiski fyrir mig og mína hefur aldrei klikkað.

Fengum nokkra jólapakka í dag, þar á meðal fékk ég kort og pakka frá gamla vinnustaðnum mínum, hefði ég verið heima hefði ég beðið um að hann færi beina leið frá mér til mæðrastyrksnefndar en þar sem hann var komin inn á borð þegar ég kom heim, mun ég sjá um að koma honum til þeirra sem á þurfa að halda meira en ég. Við erum búin að fá hangikjöt frá vinnustað mannsins míns og þar sem það nægir okkur hjúunum, væri gott að koma þessu kjöti til þeirra sem ekkert hangikjöt eiga þessi jólin. Ég þekki reyndar ungt par sem er nýbyrjað að búa og á ekki mikið. Því ekki að gefa af því sem maður hefur nóg af, það er auðvitað hægt að frysta kjötið en gott að geta glatt einhvern sem lítið sem ekkert hefur þessi jólin. En takk samt, fyrir að muna eftir aumum firrum starfsmanni, þetta var nú algjör óþarfi. Ef einhverjum finnst ég kaldhæðin þá þeir um það. Wink 

Annars hélt ég að svona munaður væri ekki lengur inni í myndinni, allavega hafði maður heyrt það að fyrirtæki myndu spara slíkt við sig á þessum síðustu og verstu.

Dagurinn í dag var svona prufudagur á föstudegi í Norðurporti, frekar róleg umferð fólks en gaman, því við kynntumst öll betur og kaffið og kakókið hennar Sollu og auðvitað vöfflurnar hlutu góðar undirtektir ! Smile

Dagurinn á morgun verður fjörugri og mun fleira sölufólk að selja.

Hvíldin vel þegin eftir langan vinnudag.

Sofið rótt og eigið góðan nætursvefn Heart

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Glæsilegt!

Vilborg Traustadóttir, 19.12.2008 kl. 23:41

2 Smámynd: Anna Guðný

Frábært að heyra hvað gengur vel. Bið að heilsa Jose.

Anna Guðný , 20.12.2008 kl. 02:19

3 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Góða helgi í Norðurporti, saltfiskréttir að suðrænum hætti nammi, namm.  Þú getur kannski orðið þér út um uppskrift og birt á blogginu?

Magnús Sigurðsson, 20.12.2008 kl. 11:08

4 Smámynd: Hulda Margrét Traustadóttir

Takk fyrir. Það er góð hugmynd Magnús, set hérna inn eina góða fyrir jólin.

Hulda Margrét Traustadóttir, 20.12.2008 kl. 12:05

5 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Namm ég hlakka til að fá uppskriftina. Annars þetta með skötuna. Við ætlum að borða okkar milli jóla og nýárs ef við fáum skötu þá! Gangi allt vel í dag.

Vilborg Traustadóttir, 20.12.2008 kl. 15:02

6 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

P.S Og já það eru kolröng skilaboð hjá Landsnbankanum að reka fólk eða lækka það í launum en senda því svo jólagjafir!!!!

Who are they kidding???

Vilborg Traustadóttir, 20.12.2008 kl. 17:30

7 Smámynd: Hulda Margrét Traustadóttir

Hvaða, hvaða Vilborg ....ég get sent ykkur úrvalsskötu með flugi....bara að nefna það ! Well, ég veit þeir meina vel hjá bankanum með gjöfinni, en það var ég sem var ekki alveg tilbúin til þess að taka á móti....sorry. Annars er ég útskrifuð frá sálfræðingnum mínum , sem er svo æðisleg....ég bað hana samt að hafa mig inni fram yfir áramótin ! Svona til vonar og vara, hitti hana í dag í Norðurporti í dag, ég vildi að allir væru eins og hún  Knús til ykkar....fer bráðum að komast í frí ......

Hulda Margrét Traustadóttir, 20.12.2008 kl. 21:26

8 identicon

Var einmitt að versla til jólanna í gær, verslaði m.a hangikjöt frá Kjarnafæði, graflaxsósu frá Kjarnafæði, pepperoni frá Kjarnafæði og kartöflugljáa frá Kjarnafæði, maður man eftir sínum sko..

Mér finnst ekki enn vera að koma jól..kannski af því að ég er ekki enn komin í frí..

Gott að allt gengur vel í Norðurporti

Stella (IP-tala skráð) 21.12.2008 kl. 14:00

9 Smámynd: Hulda Margrét Traustadóttir

Flott Stella, veljum sem mest af innlendri vöru og ekki verra að hún skuli vera frá Kjarnafæði ! Knús frá Norðurporti, hér er jólastuð

Hulda Margrét Traustadóttir, 21.12.2008 kl. 15:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband