Morgunstund gefur gull í mund.....

Það er svo mikill vani að vakna snemma að þrátt fyrir það að ég gæti nú lúrt eitthvað áfram, ákvað ég að byrja á einhverju sem þarf að gera á heimilinu. Það er alltaf eitthvað hægt að finna sér að gera á þessum árstíma. Rjúpurnar verða hamflettar á morgun og svo á ég eftir að gera góða helgarhreingerningu...ætla að njóta þess á morgun að vera heima á Þorláksmessu, hlusta á jólakveðjurnar eins og maður gerði í gamla daga heima á Sauðanesi. Það var alltaf svo notalegt að heyra allar fallegu kveðjurnar sem fólk var að senda til vina og ættingja og svo jólalögin sem spiluð voru inn á milli. Stundum bárust jólakveðjur til okkar á nesið og þær yljuðu okkur í fámenninu við nyrsta haf.

Það streyma alltaf fram fallegar minningar frá bernskujólum þegar líður að aðfangadegi. Fátt er börnum mikilvægara veganesti. Ég vona allavega að ég hafi gefið mínum dætrum góðar minningar um jólin svo þær geti minnst bernskujólanna með gleði í huga. Í uppeldinu lærði maður að leggja alúð við þessa daga og gera þá sem ánægjulegasta.

Lítil minning:

Sauðanes. Klukkan að verða sex á aðfangadagskvöld, það hafði verið  lokað inn í stofuna allan daginn, við vissum að þar höfðu mamma og pabbi kvöldið áður skreytt litla jólatréð okkar. Fjölskyldan var komin í sparifötin. Þegar kirkjuklukkurnar í útvarpinu byrjuðu að hljóma opnuðu foreldrar okkar þar inn, kveiktu ljósin á trénu og við börnin tókum andköf. Litla gervijólatréð með rafmagnskertunum glitraði fyrir augum okkar. Þvílík og önnur eins fegurð. Allir settust síðan og hlustuðu á aftansönginn í útvarpinu og það var ekki vinsælt að hafa hátt því við áttum að hlusta á innihald predikunarinnar og njóta sálmasöngsins. Þetta var alltaf mjög hátíðleg stund. Jólin voru komin í húsinu við hafið.Smile

Ég hugsa til foreldra minna sem nú eru að leggja af stað  með rútu frá Reykjavík, norður á Sauðanes, systkina minna þriggja sem búa í Reykjavík, Sollu systur sem er í Portúgal, Jonna bróður á Sauðanesi og fjölskyldna þeirra. Dætra minna sem báðar búa í borginni með sínum fjölskyldum - vonandi verða þessi jól okkur öllum sem ánægjulegust.InLove

Spakmæli dagatalsins 22. desember.

Sannkallað stórmenni veit

að það kom ekki sjálfu sér

til metorða, heldur deilir það

frægð sinni með þeim sem

stóðu á bak við það.

Njótið dagsins vinir og vandamenn Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér finnst mikilvægt að halda í þær hefðir sem maður hafði í æsku og þá hlýnar manni um hjartaræturnar

Sölvi Fannar er gjörsamlega að farast úr spenningi, hann var andvaka í 2 tíma í nótt!!

Knús í kotið..

Stella (IP-tala skráð) 22.12.2008 kl. 10:17

2 identicon

Takk fyrir hlýjar kveðjur Magga mín. Það hefur veriðsvo um mig að þegar jólin nálgast þá hvarflar hugurinn til æskujólanna og  barnið í mér tekur völdin. Eigið þið gleðileg og gæfurík jól. Heyrumst um jólin

Magnús bróðir

Magnús Hannibal (IP-tala skráð) 22.12.2008 kl. 10:53

3 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Kær kveðja og knús til ykkar í nyrðra! Gaman að lesa minningarbrotið.

Á Þorláksmessu milli klukkan þrjú og fjögur (sennilega) lemur jólakveðja í útvarpinu frá Jóni og Þóru á Melum, þeim sæmdarhjónum. Var latin vita af því í gær.

Legg eyrun sérstaklega við tækið á þeim tíma.

Vilborg Traustadóttir, 22.12.2008 kl. 12:08

4 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

KEMUR jólakveðja þetta að vera....þumalputtarnir.....;-)

Vilborg Traustadóttir, 22.12.2008 kl. 12:09

5 Smámynd: Hulda Margrét Traustadóttir

Það er eitthvað svo notalegt sem þið voruð að skrifa

Hulda Margrét Traustadóttir, 22.12.2008 kl. 13:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband