23.12.2008 | 07:33
Portugalskur saltfiskréttur og fleira......
Góðan daginn.
Saltfiskréttur "Bacalau a bras".
700 gr. saltfiskur, soðin í nokkrar mín.
2.stórir laukar
3 hvítlauksrif
1. kíló kartöflur
4. egg.
knippi af steinselju. Pipar og 1 - 2 lárviðarlauf.
Afhíðið kartöflurnar og skerið í strimla (eins og verið sé að gera franskar kartöflur en mun mjórri strimlar) Steikið vel í feiti.
Skerið niður lauk og hvítlauk látið krauma í olíu þar til orðið er mjúkt. Setjið lárviðarlauf útí og takið soðin saltfiskinn og tætið í sundur stykkin (roðlaus og beinlaus) brytjið niður svolítið af steinselju og setjið saman við, hvítur pipar eftir smekk. Hrærið vel saman við laukinn, steiktar kartöflurnar settar saman við. Hrært saman. Takið hrá eggin eitt af öðru og hrærið saman við ( hitinn settur á lægsta straum) hrært vel þar til allt hefur jafnast vel saman.
Setjið á fat og stráið yfir saxaðri steinselju og svörtum ólívum ef vill.
Verði ykkur að góðu. Rétturinn er líka mjög góður daginn eftir kaldur. Þessi réttur er sívinsæll á mínu heimili, eftirlæti Ragga tengdasonar og Sölva Fannars
Þessu lofaði ég Magnúsi bloggvini og vona að hann prufi réttinn og líki vel. Vonandi prufa fleiri. Þegar við hjónin erum orðið leið á steikunum og blessuðu hangikjötinu á annan í jólum gerir húsbóndinn gjarnan einhvern góðan saltfiskrétt handa okkur.
Spakmæli dagatalsins:
Það má alltaf sjá björtu hliðina
á öllu sem gerist og líka í hverri
manneskju. Einsettu þér að finna
hver hún er og þú munt fá nýja
sýn á lífið.
Jólin eru að koma.............
Ætla að setja inn hérna jólakveðju til ykkar í firramálið.
Úti ýlfrar vindurinn, það er komin hláka og snjórinn að fara.
Ég ætla núna að bretta upp ermar, taka rjúpurnar og hamfletta þær og fara svo um íbúðina með sápuvatn í fötu þar til allt verður hér hreint og glansandi.
Skreytti "kærleikstréð" frá henni Boggu í gær og nær það næstum uppí loft þegar toppurinn er talin með. Það var næstum tveggja tíma vinna að setja á það og á því eru þrjár jólaseríur og allar mínar jólakúlur og dót ! Dalí minn var hinn þolinmóðasti en var farin að ýta á eftir mér í lokin, að fara nú að koma mér út að labba frekar en vera með þetta dund.
Njótið undirbúnings jólanna, það verður gott að fá sér skötu í matinn í kvöld
Athugasemdir
Takk fyrir saltfiskuppskriftina. Prófa hana um helgina, hef í gegnum árin haft mjög gaman að því að fá ættinga og vini í heimsókn á milli jóla og nýárs, í suðrænan saltfisk, nú prófa ég þessa uppskrift.
Spakmæli dasins klikkar ekki.
Magnús Sigurðsson, 23.12.2008 kl. 07:57
Sendi þér og þínum mínar bestu óskir um gleðileg jól og farsæld á komandi ári.
Vona að þú náir að slaka vel á og njóta hátíðanna í faðmi fjölskyldunnar.
Kær jólakveðja, Auður
Auður Úa (IP-tala skráð) 23.12.2008 kl. 09:08
Þetta er einmitt með betri saltfiskréttum sem ég hef smakkað! Hafið það gott um jólin. Knús og kossar!
Drífa Þöll (IP-tala skráð) 23.12.2008 kl. 10:20
Verði þér og þínum að góðu Magnús, þessi klikkar ekki, ég get lofað því og líka hún Drífa Þöll sem skrifaði hér inn líka. Já ég hef gaman af þessu dagatali og það er svo margt satt í þessu.
Takk Auður Úa - sömuleiðis til þín og þinna.
Drífa ég var að reyna að skrifa inn á síðuna þína en lenti í endalausu brasi og gafst upp En knús til ykkar í Vestmannaeyjunum.
Hulda Margrét Traustadóttir, 23.12.2008 kl. 10:36
Jálaknús og hef þennan rétt vísast á Þrttándanum!!!!
Vilborg Traustadóttir, 24.12.2008 kl. 00:05
Já, virkilega góður saltfiskréttur, verði þér og ykkur að góðu.
Hulda Margrét Traustadóttir, 24.12.2008 kl. 10:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.