Jóladagur.

Ég læt það ekki eftir mér að lúra fram að hádegi. Það er ekki hægt að missa af fallegri jólatónlist, njóta friðarins og hátíðarinnar. Er samt komin með sængina mína fram í sófa ásamt stórum púða. Ætla að njóta þess að lesa, kveikja á kertum og hlusta á þessa tónlist.

Við hjónin áttum yndislegt kvöld í gær og eftir gjafaflóðið, heyrðum við í mörgum fjölskyldumeðlimum, bæði hér heima og erlendis. Mikið erum við búin að hugsa til ykkar og sakna þess að hafa ykkur ekki nærri. Allir hressir og það er fyrir mestu. Við þökkum fyrir okkur Smile Dalí var yfir spenntur enda fékk hann fjóra pakka sem hann opnaði að mestu sjálfur, nú er hann alveg ruglaður í því að hverju hann á að leika sér og endaði með að taka allt góssið með sér undir rúm. Hann var eins og barn að farast úr spenningi og byrjaði svo að ýlfra við pakkastaflann. LoL

Spakmæli jóladagsins:

Á jólunum lítum við heiminn með

kærleika í huga. Þau eru tími til að

minnast þess að heimurinn byggist

upp af fólki eins og okkur og leitast

við að sjá þeirra innri mann. Það

skiptir ekki máli hverjir mennirnir

eru eða hvaðan þeir koma, allir

glíma við einhvern vanda.

Svo mikill sannleikur í þessu !´

Njótið áfram þessara yndislegu daga. Það ætla ég að gera, er farin uppí sófa að lesa. Og svo er það hangikjötið og rjúpurnar sem eftir voru í gær svona þegar líður að hádegi....nammi........

Gleðileg jól !


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Það er letilíf þessa daga. Sannleikur þetta með að allir eiga vanda að glíma við. Okkur gengur misvel að takast á við hann og stuðningur okkar nánustu er mikilvægur þegar vandi steðjar að.

Njótið jólarestar!!!

Vilborg Traustadóttir, 26.12.2008 kl. 00:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband