27.12.2008 | 19:37
Búin að rífa mig upp....eftir jólin....
...já, dagurinn í dag var svolítið skrítin í Norðurporti, varla "köttur " á kreiki eftir jólin, erfitt að trúa því eftir allt fjörið fyrir jólin. En við sátum þarna nokkrar stöllur yfir kaffi og vöfflum að spjalli og fengum að heyra hinar ýmsu lífsreynslusögur - sem væru sko örugglega efni í heila bók. En allt var þetta í trúnaði sagt og ekki ætla ég að fara að bera þessar sögur á torg. En fólk hefur átt misjafna ævi - svo sannarlega og ég dáist að þeirri hreinskilni sem ég varð vitni að í dag ! Á Íslandi eru margar kjarnakonur, sem ekki gefast upp ! Þar sannaðist spakmælið að hluta til "Maður er manns gaman" en svo var líka eymdin með í för. Ég hefði getað hlustað endalaust - Ég vildi gjarnan koma þeirri konu sem sagði okkur svo margt í dag úr lífi sínu, í samband við góðan bókaútgefanda.
En ég vildi koma að spakmælinu sem dagatalið gefur okkur í dag:
Kærleikur, auðmýkt, bæn
og gott samband leysa
allan vanda !
Svo er það spakmæli dagatalsins 28des. (Ég veit ekki hvað ég verð árrisul á morgun og mæti í Norðurport kl.13:00. Og ég ætla að vera búin að taka hér til fyrir hádegi og viðra aðeins út eftir jólin þar sem von er á góðum gestum í mat til okkar annað kvöld).
Mikið af því sem þú sérð fer eftir því
hverju þú leitar að. Þú sérð það sem
þú vilt sjá.
Njótið kvöldsins, kveikið á kertum og hafið það náðugt og verið góð hvort við annað
Athugasemdir
Þótt skömm sé frá að segja Magga, þá kom ég aldrei í portið þitt fyrir jól en kíkti þangað í gær. Gaman verður að sjá hvernig þetta þróast hjá þér. Vonandi nærðu að tryggja þér húsnæði og festa þennan markað í sessi. Það er full þörf fyrir svona markað hér nyrðra. Gangi þér vel.
Haraldur Bjarnason, 28.12.2008 kl. 09:29
Það sem gefst best í lífinu er að gefast aldrei upp.
Magnús Sigurðsson, 28.12.2008 kl. 10:25
Takk fyrir þetta Haraldur, ætlaði mér alltaf að fara af stað með þetta til frambúðar. Og vonandi landa ég einhverjum samningi með húsnæðið á morgun, ég er sammála því að það sé þörf fyrir svona markað hér og að það verði enn meiri þörf á næstu mánuðum. En aldrei að gefast upp, rétt Magnús
Hulda Margrét Traustadóttir, 28.12.2008 kl. 10:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.