Áfram skal haldið....

Ég hef verið að velta fyrir mér framtíð Norðurportsins og vil trúa því að þetta gangi áfram. Ég fer á morgun í viðræður út af áframhaldi í húsinu hjá nýjum eigendum. Það væri mjög heppilegt að geta verið þar áfram, í stað þess að taka hlé, leita að nýju húsnæði og næstum byrja uppá nýtt Woundering þá þyrfti að flytja borðin og hellings vesen....en maður mundi nú lifa það af Wink. En desember mánuður hefur fært mér hellings reynslu og ég hef kynnst aragrúa af yndislegu fólki, bæði þar sem sölufólkið er og svo gestum og gangandi. Frábærar móttökur og skemmtilegir dagar.

Læt ykkur vita á morgun hvernig fer. Ef ég fæ þetta húsnæði áfram, ætla ég að hafa hlé fyrstu helgina í janúar og nota tíman af fullum þunga til þess að fá inn meira af matvælum og aðila sem eru tilbúnir til þess að vera ákveðið vissar helgar svo þetta verði öruggara á allan hátt. Og opna svo aftur með "pomp og prakt" aðra helgina í janúar 2009.

Sendið mér góða strauma, ekki veitir af !

Á Akureyri er dásamlegt veður, hlýtt og bjart og himininn skartar rauðum og bleikum litum þar sem desembersólin er greinilega að reyna að brjótast fram einhverstaðar á bak við fjöllin, sáum hana aðeins í gær í allri sinni dýrð !

Njótið dagsins og látið ykkur líða vel. Góður dagur til gönguferða Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vonum það besta, trúi ekki öðru en þetta gangi vel 

P.s setti nýjar myndir inn á síðuna hjá strákunum í gær..

Kv,

Stella.

Stella (IP-tala skráð) 28.12.2008 kl. 13:01

2 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Hæ hæ.

Já nú er Þorinn að skella á og ekki vanþörf á að hafa gott framboð af þorramat, t.d.harðfiskinn góða,hákarl,svið, flatkökur og hangikjöt og súrmat og bara allt sem tilheyrir.+

Þetta mun ganga vel áfram. Það er von að það sé rólegt núna milli hátíðanna. Maður áttar sig ekki á hvaða dagur er hvað þá meir! ;-)

Það er bara að þreyja Þorrrann og Góuna!

Vilborg Traustadóttir, 28.12.2008 kl. 15:23

3 identicon

Hæ dúlla

klukkan er 12/16 á mánudegi

og ég bíð spennt eftir að heyra fréttir

ég sofnaði aftur í morgun og draumurinn var þannig að ég er viss um að húsnæðið er fengið ...dísss hvað mig hlakkar til að takast á við þetta verkefni ég veit að það verður bara gaman...

..kv Solla

Sólveig Bragadóttir (IP-tala skráð) 29.12.2008 kl. 12:19

4 Smámynd: Hulda Margrét Traustadóttir

Jamm, skvísur. Sit hér alveg sveitt og veit ekki neitt. En verð látin vita síðar í dag. Veit bara að kallarnir voru að fara að sýna fleirum húsnæðið ! Held ég geti ekkert gert í dag á meðan ég bíð....ekki einu sinni lesið

Hulda Margrét Traustadóttir, 29.12.2008 kl. 12:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband