29.12.2008 | 14:44
Óvissa....
Ég fór og hitti forsvarsmenn nýrra eiganda Dalsbrautar 1. Ég veit ekkert ennþá, þar sem þeir voru að fara að sýna fleirum húsið. Má vænta svars í dag eða á morgun ! Ég er eitthvað alveg ónýt og ekki að farast úr bjartsýni.
Það er einhvernvegin þannig með mig að þegar líður að áramótum verð ég frekar sorgmædd og full af söknuði. En þetta ár hefur verið mjög svo sviptingasamt hjá mér. Það hafa verið margar gleðistundir en líka stundir sorga og leiðinda. Aðallega þó söknuður vegna atvinnumissis og þess að missa tengsl við marga góða vinnufélaga og vini. Gleðin hefur verið þegar ég hef getað verið samvistum við okkar nánustu, börnin mín og barnabörnin og aðra fjölskyldumeðlimi og átt ánægjulegar samverustundir með þeim.
Einhvernvegin var ég ekkert farin að hugsa um komandi ár en smátt og smátt læðist að manni einhver kvíði fyrir því. Kannski vegna þjóðfélagsástandsins og allrar þeirrar umræðu þar að lútandi.
Ég vona svo sannarlega að ég missi ekki líka af því að geta haldið áfram að byggja upp það sem ég byrjaði á í desember - Norðurporti og öllu því góða fólki sem þar kom við sögu.
Þá opnaði ég dagatalið og þar stendur:
Hikaðu ekki við að fela
ókomna framtíð í hendur
Guðs, hann þekkir hana.
Ég ætla ekki að velta mér lengur upp úr leiðindum í dag - fer út að ganga og rjátla þessar óvelkomnu hugsanir af mér.
Eigið góðan dag Læt ykkur vita af gangi mála.
Athugasemdir
Það var lagið. Halda í bjartsýnina og viljann. Nýtt ár hefur ótal tækifæri og Guð mun forgangsraða þeim til okkar ef við leyfum honum það.
Gott máltæki.
Vilborg Traustadóttir, 29.12.2008 kl. 15:41
Vonum það besta mín kæra..
Kv,
Stella.
Stella (IP-tala skráð) 29.12.2008 kl. 20:11
Sæl Margrét, vonandi gengur þetta hjá þér, svo sannarlega þarft framtak.. Megi þú og þínar hafa það gott á komandi ári. Kveðja Linda.
Linda (fyrrverandi granni) (IP-tala skráð) 29.12.2008 kl. 21:13
Ég er að velta fyrir mér hve Akureyrarbær er sinnulaus í málinu. Fattar bæjarstjórnin virkilega ekki hve gríðarleg innspýting þetta er fyrir marga?
Þú ert að greiða leigu til bæjarins sem gerir það að verkum að ekkert verður eftir af innkomunni! Eða það gæti ég ímyndað mér svona án þess að vera inni í þeim málum.
Á krepputímum lofa þeir að styðja við ný fyrirtæki og gera það að vissu marki en í þessu tilfelli finnst mér að bærinn ætti að skaffa húsnæði gegn vægu gjaldi eða endurgjaldslaust!
Þetta vekur vonir, gefur atvinnu og eykur bjartsýni og tiltrú þegar ekki er mikið um aðrar ástæður til þess að vera bjartsýnn á eitt eða neitt. Vægast sagt.
Vilborg Traustadóttir, 29.12.2008 kl. 23:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.