Árið að verða búið....

Bíð enn frekari frétta af húsnæðinu ! Mig dreymdi eitthvað rugl og var andvaka um miðja nótt. Ætla því að reyna að lesa og lúra svolítið lengur.

En kíkti á spakmæli dagsins:

Lífið er stutt. Hvað gerðir þú

í gær sem þú vilt að þín verði

minnst fyrir ? Hvað ætlar þú

að gera í dag ?

Hm..góðar spurningar.

Góð Íslensk vinkona mín sem býr í Portúgal var hérna hjá okkur í firradag í mat ásamt dóttur sinni. Það var gaman að hitta þær og ræða málin. Þeim fannst skrítið að hér væri ekki snjór og eru að vonast eftir að hann komi áður en þær fara í byrjun janúar. Á meðan þær voru hér sáum við í Portúgölsku fréttunum að í norður Portúgal er allt hvítt ! En hver dagurinn á eftir öðrum hér heima með hlýindum og dásamlegu veðri.

Fer að lúra smá, reyna að lesa og hafa það huggulegt. Mæti svo hjá doktornum mínum kl.11.

Njótið dagsins Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband