30.12.2008 | 16:57
Áramótauppgjörið mitt.....
Árið 2008.
Uppgjörið mitt.
* Árið byrjaði eins og önnur ár hjá mér, með bjartsýni.
* Man ekki til þess að veður hafi verið mjög slæmt s.l. vetur. Allavega komst maður alltaf í vinnuna.
* Mæðgnaferð sem mínar dætur skipulögðu til Minneapolis var ákveðin í apríl og ferðina átti að fara í nóvember, tókum frá orlofið okkar og greiddum ferðina í maí.
* Fórum hjónin í fyrsta skipti til Vestmannaeyja með dóttur og tengdasyni ásamt þeirra börnum og henni Tinnu okkar í júní og áttum dásamlega daga hjá Fríðu. Það var mikil upplifun að koma til Vestmannaeyja og skoða bæinn og fá söguna beint í æð. Heimsóttum líka Drífu Þöll frænku mína sem þar býr.
* Fengum góða gesti í heimsóknir í sumar. M.a. kom Vilborg systir og við stunduðum svalamálun eina helgi og það var gaman. Mikil afköst.
* Veðráttan í sumar ekkert sérstök, komu þó nokkrir góðir dagar.
*Ketilásball í anda hippakynslóðarinnar var haldið á Ketilási í Fljótum í endaðan júlí. Þessu balli stóðum við Vilborg systir fyrir og undirbjuggum í nokkra mánuði. Hljómsveitin Stormar frá Siglufirði lék öll góðu gömlu lögin. Ballið heppnaðist frábærlega og veðrið var gott. Gátum skilið eftir nokkra upphæð til viðhalds Ketilásnum og vorum glaðar með það. Gugga frænka var gjaldkeri og stóð sig með mikilli prýði ! Og fólkið í sveitinni hjálpaði til. Gaman !
*Í ágúst fórum við hjónin síðan í sumarfrí og heimsóttum fjölskyldu mannsins míns til Portúgal. Dvöldum fyrst hjá Sollu systur í Montechoro á Algarve í tvo daga og eyddum síðan einni viku á Costa de Caparica í íbúð vinafólks okkar. Héldum síðan til Lissabon til fjölskyldumeðlima þar og þaðan til foreldra José í Medelim. Það var gaman að hitta fjölskylduna og vinina og allstaðar var tekið á móti okkur af miklum myndarskap. Teresa Sofia dóttir mannsins míns kom í heimsókn og var með okkur í eina viku hún kynnti okkur líka fyrir unnusta sínum honum Diego. Það var gaman að kynnast henni betur og hitta kærastann. Daginn áður en við héldum heim fæddist lítill drengur í fjölskyldu José og gátum við litið á hann fyrir brottför. Alltaf jafn gleðilegt að sjá lítil nýfædd börn. Fjölskylda mannsins míns er einstök eins og mín og maður þakkar af alhug fyrir það sem maður á.
* Ég veiktist illa af flensu þegar heim var komið og lenti uppúr því í allskonar rannsóknum. Eftirfylgni þess vegna átti að vera í desember en frestast fram í janúar, ekkert alvarlegt en það er einhver breyting á skjaldkirtli sem fylgjast þarf með.
* Bankahrunið í október. Erfiðustu dagar sem ég, sem bankastarfsmaður hef þurft að vinna í gegn um árin.
* Ferðin til Minneapolis, var farin í október. Það var barningur að ná í dollara en út fórum við samt og áttum fjóra góða daga mæðgurnar. Mjög skemmtileg ferð. Uppúr standa samræður og samvistir við dæturnar og það sem við gerðum okkur til skemmtunar utan verslunarferða sem þó voru nú ágætar svona í bland.
* Kom heim á miðvikudagsmorgni, 22. október, fékk upphringingu til mömmu og pabba í Reykjavík, síðdegis þann dag frá útibústjóranum á Akureyri. Ég var ekki ráðin til nýja bankans. Sjokk ! Var samt búin að vinna fyrir hann í tvær vikur. Grátur - í eyru útibússtjórans sem örugglega leið ekki heldur vel. Erfiðast við þetta fannst mér að fá fréttirnar í síma.
* Farið í bankann daginn eftir og kvatt. - Erfitt, eftir 27. ára starf hjá sama fyrirtæki.
* Heima í sorg og sút í eina viku, gerði hreina alla skápa eins og ég ætti lífið að leysa. Reyndi að fara mikið út að labba. Tók grát- gusur einu sinni eða tvisvar yfir fötunni með hreingerninga vatninu og grét síðan í koddann á kvöldin, reyndi að fela það fyrir mínum heittelskaða hvað mér leið illa, en tókst það auðvitað ekki. Hann umfaðmaði mig og hjálpaði á alla lund.
* Nokkrar firrum samstarfskonur mínar voru duglegar að hafa samband við mig, færðu mér gjafir, heimsóttu mig og buðu mér heim. Það gerði mér gott. Ég slitnaði ekki úr tengslum við þær. Það er þakkarvert.
* Fór að sækja um vinnu hér og þar og pantaði mér tíma hjá sálfræðingi. Lítil von um vinnu á þessum tíma þar sem allir voru frekar að draga saman.
* Fór ásamt Vilborgu systur á myndlistarnámskeið hjá Erni Inga eina helgi, mjög gaman hjá okkur og áfram mikil afköst. Það hjálpaði mér mikið á þessum tíma að fara á þetta námskeið og að fá systur mína norður var toppurinn !
* Ákvað að skella mér í rekstur Norðurports (hugmynd sem kom upp í huga minn þegar ég var á leið niður Borgarbrautina einn daginn og sá þar hús sem stóð autt að hluta. Ég var ekkert farin að velta fyrir mér, einhverjum rekstri sjálf. Það var svona eins og þessu væri hvíslað að mér). Þann sama dag hóf ég grimman undirbúning sem stóð næstu þrjár vikurnar. Hringingar í allar áttir, spurningar og svör... heimilið var eins og ein stór skrifstofa. Fékk góðan stuðning og pepp hjá sálfræðingnum mínum, ættingjum, eiginmanni og fleirum.
* Mætti síðar til bæjarstjóra Akureyrarbæjar með beiðni um fyrirgreiðslu um húsnæði og hjálp og greinagerð um framkvæmdaáætlun Norðurports.
* Fengum skemmtilega heimsókn þar sem þær systur Tinna og Hrönn komu norður og við fengum að gæta þeirra á meðan pabbi þeirra var á rjúpnaveiðum og mamma þeirra í prófum, þær dvöldu hjá okkur í þrjá daga og við skemmtum okkur vel.
* Fékk leigt húsnæði hjá Akureyrarbæ að Dalsbraut 1 og hóf starfsemi Norðurports þann 6. desember.
* Allt gekk upp, vel mannað af sölufólki og frábær byrjun. Kynntist aragrúa af góðu fólki. Telst til að allt að 100. manns hafi komið að sölu og skemmtiatriðum þessar helgar. Góð tilfinning að hafa stuðlað að atvinnu fyrir svo margt fólk á tæpum einum mánuði.
* Tinna mín kom norður og hjálpaði ömmu í Norðurporti eina helgi.
* Fékk inni hjá Sprotasetri á vegum Akureyrarbæjar, þeim leist greinlega vel á verkefnið, ég flutti inn á skrifstofu hjá atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar og uni hag mínum vel þar eftir hádegi á daginn og á von á allri þeirri hjálp sem þeir geta veitt mér næstu 6.mánuði. Þannig að skrifstofan mín flutti að heiman. Flott framtak þetta hjá Akureyrarbæ.
* Dóttir mín sem er lögregluþjónn í Reykjavík var bitin við skyldustörf ég skrifaði um það á blogginu og var það birt í morgunblaðinu. Fékk síðan góðar kveðjur frá yfirmönnum hennar en í greininni ræddi ég um að ofbeldi sem þetta væri engum til góðs.
* Útskrifaðist frá sálfræðingnum mínum henni Björgu Bjarnadóttur, eftir fjórar heimsóknir til hennar, en við ákváðum að eiga inni tíma eftir áramótin ef ég héldi að ég þyrfti á því að halda. Enda erfitt að slíta sig alveg úr tengslum við jafn frábæra manneskju. Þessir tímar hjá henni voru "bara" uppbyggjandi.
* Jólin. Kærkomin hvíld. Góðir dagar til hvíldar, lestrar, umhugsunar og íhugunar.
* Ellen vinkona frá Portúgal kom í heimsókn ásamt dóttur sinni henni Önnu. Áttum skemmtilegt kvöld saman.
* Hitti fulltrúa nýrra eigenda að Dalsbraut 1 þann 29. desember. Óskaði eftir áframhaldandi leigu vegna Norðurports.
* Mætti til læknis til þess að fara yfir stöðuna og áframhaldandi eftirlit, sem byrjar eftir áramótin.
* 30.des. Fékk að vita að væntanlega verður í lagi með áframhald vegna húsnæðis Norðurports á sama stað. Eftir á að semja um leigu og fleira.
* Upp úr standa þegar litið er yfir farin veg og árið 2008- stundir með fjölskyldum okkar og vinum. Það að fá að fylgjast með barnabörnunum vaxa úr grasi og kynnast þessum dásamlegu einstaklingum betur. Eiga foreldra á lífi sem búa enn í dag sínu eigin búi og eru andlega hress þrátt fyrir háan aldur. Geta litið stoltur um öxl og hugsað sem svo að maður hafi látið eitthvað gott af sér leiða. Þrátt fyrir stormasamt ár, er maður enn að hugsa um að gera betur og halda áfram í því verkefni sem Norðurport er. Ef ekki er rétti tíminn núna þá hvenær ? Það var líka frábært að kynnast öllu því fólki sem að Norðurporti kom. Ég fékk einstaka hjálp og það sannaðist að samstaða er það sem máli skiptir. TAKK ÖLL.
Maður verður að halda í bjartsýnina og vona það besta okkur öllum til handa. Það dugar ekki að hugsa endalaust um hið liðna, heldur horfa fram á veginn.
Megið þið eiga farsælt ár og þökk fyrir liðnar stundir. Við munum komast í gegn um öldurótið á nýju ári. Því trúi ég, þrátt fyrir allt..Og ég mun leggja mitt af mörkum til þess að nýja árið geti orðið okkur til farsældar. Ég er þakklát fyrir að hafa getað gert það sem ég gerði á árinu 2008.
Megi góður guð vaka yfir okkur öllum á árinu 2009.
Það er við hæfi að enda hér á ljóði eftir skáldið okkar Davíð Stefánsson. Úr ljóðinu
Í dögun
Er sálin rís úr svefnsins tæru laug
er sælt að finna líf í hverri taug
og heyra daginn guða á gluggann sinn
og geta jafnvel boðið honum inn.
----------
Í dögun verður öllum lífið ljúft,
sem líta upp og anda nógu djúpt.
Að allra vitum ilmur jarðar berst,
þó engin skilji það sem hefur gerst.
Davíð Stefánsson.
Megið þið njóta komandi daga og áramótin verða ykkur ljúf !
Athugasemdir
Til hamingju með árið. Heildarmyndin er flott og vonandi stendur þetta með húsnæðið.
Það er miukilvægt að halda starfinu áfram í Norðurporti. Það er svo jákvætt starf fyrir alla aðila!
Vilborg Traustadóttir, 30.12.2008 kl. 17:27
Takk systir og gangi ykkur sem best
Hulda Margrét Traustadóttir, 30.12.2008 kl. 18:19
sæl flotta kona.
Vona að þú gerir þér grein fyrir því hvað þú ert klár
Óska þér og þínum gleðilegs árs og vona að nýja árið færi þér mikla sköpunargleði, kærleik og yl.
Kær kveðja,
Auður
Auður Úa (IP-tala skráð) 31.12.2008 kl. 09:24
Takk Auður mín, sömuleiðis til þín og þinna
Hulda Margrét Traustadóttir, 31.12.2008 kl. 09:48
Gleðilegt ár Magga. Fullviss um að Norðurport á framtíð fyrir sér.
Haraldur Bjarnason, 31.12.2008 kl. 12:21
Gangi þér vel með Norðurports ævintýrið. Saltfiskrétturinn var frábær, þú átt greinilega góðan kokk.
Gleðilegt ár.
Magnús Sigurðsson, 31.12.2008 kl. 13:06
Takk Haraldur og Magnús. Kokkurinn minn klikkar ekki, gott þér líkaði rétturinn Magnús. Gleðilegt ár !
Hulda Margrét Traustadóttir, 31.12.2008 kl. 13:15
Gaman og gott að lesa elsku mamma
Stella (IP-tala skráð) 1.1.2009 kl. 15:41
Takk elsku Stella mín, vona að Sölvi minn hleypi í sig kjarki og komi á morgun, mikið væri það nú gaman....annars virðir maður hans ákvörðun, enda er hann ekki hár í loftinu En við getum gert margt saman....og Dalí mundi vakna til lífsins eftir áramótahremmingarnar...
Hulda Margrét Traustadóttir, 1.1.2009 kl. 16:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.