Nýtt ár.............

Upp er runnin 1. janúar. Gleðilegt ár !

Við áttum rólegt kvöld hér heima hjúin og pössuðum uppá Dalí okkar sem var ægilega hræddur. Ég held við þurfum að fá róandi fyrir hann fyrir næsta gamlárskvöld. Hann skalf eins og hrísla innst inni í horni undir hjónarúminu og leið voðalega illa. Við náðum honum ekki út að pissa firr en kl. 3 í nótt og þá hafði hann ekki farið út síðan eftir hádegi í gær. Því alltaf var verið að senda upp eina og eina bombu. Um miðnættið vorum við saman inni í svefnherbergi með sjónvarpið á fullu og ljósin kveikt og allt dregið fyrir. Öðruvísi áramót, síðan við fengum hann. Wink Við hjónin höfum aldrei verslað okkur flugeld síðan við byrjuðum að búa fyrir 18. árum. Það virtist hins vegar ekki vera "kreppa" í flugeldum á Akureyri í ár.

Nú er stefnan tekin á góðan göngutúr inn í sveit. Fallegur dagur, sem vonandi vísar á gott ár !

Spakmælið í dag:

Nýtt ár veitir ný tækifæri til

nýs og betra lífs. Nýttu þér

þau til fulls.

Það er hátíð í huga mínum á nýársdag, mér finnst þetta einn mesti hátíðisdagur ársins, þegar ég sleppi takinu á liðna árinu og byrja að horfa fram á veginn. Gamlársdagur er aftur á móti dagur fullur af söknuði og trega í mínum huga. En nú er nýja árið komið og við horfum fram á við.

Gleðilegt ár og takk bloggvinir og þið öll hin fyrir samveruna á blogginu á síðasta ári ! Þið hafið svo oft sent mér uppörvandi orð.

Njótið dagsins öll sem eitt.Heart

Vilborg - fór í rosalegan góðan göngutúr eftir hádegi, hugsaði til þín og allra hinna í fjölskyldunni, það var stafalogn ég var ein í sveitinni með Dalí sem hljóp og hljóp. Ég horfði á hafið í logni og óskaði þess að tíminn næmi staðar.  Þegar ég leit til suðurs, blöstu Súlurnar við umvafðar litum janúar sólar, var það nema von að ég hugsaði til þín ?.....Við komum heim endurnærð !


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Gleðilegt ár. Já Súlurnar og þú ekki með trönurnar með þér og það sem verra er ég ekki með! ;-)

Vilborg Traustadóttir, 1.1.2009 kl. 15:50

2 Smámynd: Anna Guðný

Gleðilegt ár. Engin spurning að gefa þessum greyjum  eitthvað róandi á svona kvöldum.

Annars var fullt af flugeldum keypt á mínu heimili eins og venjulega. Fórum út í sveit og skutum upp og horfðum yfir fjörðinn á ljóisadýrðina í Akureyrarbæ.

Anna Guðný , 1.1.2009 kl. 16:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband