2.1.2009 | 11:50
Hvað verður....
Góðan daginn.
Ég er búin að vera í sambandi við mann og annan útaf húsnæði fyrir Norðurport. Er með smá bakþanka vegna Dalsbrautarinnar sem kostar slatta, einnig kannaði ég annað húsnæði á Glerárgötunni sem er dýrara.....en er svo að kanna eitt enn sem gæti lofað góðu svona ef til lengri tíma er litið - sem sagt allt í skoðun ! Ekkert ákveðið - en það kemur.
Spakmælið :
Í upphafi árs skaltu hugleiða
hverju þú hefur komið til leiðar
í lífi þínu og vertu þakklátur,
en láttu ekki þar við sitja, heldur
settu markið enn hærra og þú
munt ná því.
Þau standa fyrir sínu - spakmælin.
Ég á von á Sölva mínum til helgardvalar, en hann er á leiðinni með Huldu og Tomma og fjölskyldu sem eru að koma í skíðaferð norður. Hann er að fara í fyrsta sinn einn að heiman og ég veit að það reyndist honum ögn erfitt að segja bless við mömmu og pabba en hann var spenntur. Svo hringdi kotroskin ung stúlka í mig í gær og kom sér beint að efninu.
"Amma, ein spurning. Get ég kannski gist hjá ykkur"? Svarið var einfalt "Elsku Tinna mín, þú veist að þú getur alltaf komið til okkar þegar þú vilt og að okkar er ánægjan " Svo það stefnir í barnabarna fjör um helgina. Nóg að gera, ekki leiðinlegt.
Njótið dagsins og góða veðursins
Athugasemdir
Það er gaman að fá barnabpörnin í heimsókn og til dvalar. Þeir eru tveir hér núna að leika sér og klippa. Góðar kveðjur norður.
Vilborg Traustadóttir, 2.1.2009 kl. 15:00
Söknum Sölva endalaust en vitum að það verður gaman hjá ykkur
Kv,
Stella.
Stella (IP-tala skráð) 2.1.2009 kl. 23:53
Gleðilegt ár elsku frænka! Allt gott af okkur, nú styttist í að dúettinn láti sjá sig og við erum mjög spennt. Bið að heilsa José.
Drífa Þöll (IP-tala skráð) 3.1.2009 kl. 11:35
Það er fjör, sváfum í einni kös í gestaherberginu ég og börnin. Allt gengur vel ! Spennandi Drífa mín, ég var að reyna að skrifa inn á síðuna þína um daginn en lenti í endalausu brasi...en gleðilegt ár og gangi þér vel. Þú lofar okkur að frétta
Hulda Margrét Traustadóttir, 3.1.2009 kl. 12:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.