Færslan mín datt út...

...og þá er maður latur að byrja aftur....hef verið blogglöt og skrifa það á annir og þreytu.

Nóg að gera um helgina og mikil traffík á laugardaginn. Rólegra í gær, eins og gengur.

Spakmælið í dag á ágætlega við þar sem ég fékk þær fréttir í dag að það á að endurtaka blóðrufurnar mínar, eitthvað ekki nógu gott í þeirri síðustu. Hm...hef líka verið þreyttari en venjulega. Þetta hefur með vanstarf í skjaldkyrtli að gera og of háa blóðfitu. Hm...þá er að taka á því og reyna að laga málin.

Fortíðin er liðin, framtíðin ókomin

og tilheyrir þér ekki enn sem

komið er. Núna er eini tíminn

sem þú átt. Nýttu hann vel.

Megið þið eiga góðan nætursvefn og fallega drauma í nótt Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Blóðfitan hrapar niður í Detox í Póllandi.

Vilborg Traustadóttir, 16.2.2009 kl. 23:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband