24.3.2009 | 13:05
Góður dagur....
Ég kveikti á perunni um síðustu helgi að það var komin tími á skattaskil, eins og venjulega tekst mér að geyma þetta fram á síðustu stundu - skil ekki alveg hvað mér leiðist þetta þar sem þetta er nú ekki mikið mál þegar á hólminn er komið, að vísu þarf ég að skila rekstrarskýrslu núna vegna Norðurports en held að það verði nú ekki mikið mál. Klára þetta í vikunni, varð mér úti um frest í viku. Í morgun gekk þetta allavega vel, vantar smá upplýsingar og þá verður málið bara dautt eftir það !
Það er svo miklu skemmtilegra að fara út að ganga, dunda heima, gera það sem gera þarf og svona, en skýrsluna þarf að gera svo...... þá það !
Enn stefnir í góða helgi hjá okkur í Norðurportinu og vikan verður búin áður en maður veit af. Það er allt komið á fullt skrið með þjóðarkvöldið þann 9.apríl svo ég sé ekki annað en að við skellum því á. Sölufólkið er spennt og þetta verður án efa skemmtilegt kvöld.
Spakmæli dagsins í dag kemur hér:
Þú uppskerð eins og þú sáir.
Guð launar þér, ekki bara hér
og nú, heldur um ókomna framtíð.
Eigið góðan dag. Er farin í bankann og ýmsar útréttingar
Athugasemdir
Já Hulda mín. Ekki er gaman að fylla út þessar skattaskýrslur og ágætt að taka sér hlé á milli til að sinna öðru.
Hilmar Gunnlaugsson, 24.3.2009 kl. 22:32
HULDA MARGRÉT TRAUSTADÓTTIR.
ÞAÐ ER ALDEILIS NAFN KV SELMA SÆTA
Selma (IP-tala skráð) 25.3.2009 kl. 15:36
SJÁUMST UM HELGINA.
Selma (IP-tala skráð) 25.3.2009 kl. 15:37
Já, Selma ég sem alltaf er kölluð Margrét ! Sjáumst væna mín
Hulda Margrét Traustadóttir, 25.3.2009 kl. 17:23
Hæ Magga. Vorum að koma heim og sáum þá að myndin Hraun væri seld. Gaman að því. Heyrumst fljótt og gott gengi áfram.
Magnús H Traustason, 25.3.2009 kl. 20:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.