Látum hugann reika..........

Var að koma úr gönguferð og gönguferðir fá mann til að hugsa - Ekki langt síðan þrjár systur fóru á tónleika með Kim Larsen...........Nú eru tvær af þremur systrum eftir í heimi hér.  Mikið var þetta skemmtilegt kvöld og verður alltaf stór partur af minningabrotunum öllum. Það er svo mikilvægt að halda í þau öll...stór og smá -

SmileHeart 


Eigið sem bestan daginn !

Sendi ykkur eitt af mínum uppáhaldslögum - Eldspræk eftir morgunsund og afslöppun eftir það !

Svo er bara að raula með.....Heart Knús og kram  Smile 


Stór dagur fyrir Fjallabyggð...

Í dag verða samgöngur heldur betur bættar fyrir Norðlendinga og bæina  Ólafsfjörð og Siglufjörð og reyndar er þetta mikil bót fyrir alla landsmenn.

Þar sem ég er nú uppalin á nesinu vestan megin Siglufjarðar kannast ég vel við óðveðrið og óöryggið í samgöngumálum þarna á svæðinu.

Þegar Sauðanes komst í samband við Siglufjörð og aðra landshluta varð það mikil breyting fyrir fjölskylduna á nesinu sem hafði fram að því verið mjög einöngruð í sínum heimi. Það var bara um tvennt að velja áður, sjóleiðina og treysta þá á Siglfirðinga sem áttu trillur eða báta eða skella sér fótgangandi yfir Gjár eða Skjöld og fyrir þá allra hörðustu eins og pabba, Óla Brandar og fleiri vaska menn að ganga framan í Strákafjallinu og fara þá leiðina til Siglufjarðar.

Það verður ljúft að renna úr Eyjafirðinum að vetri til án þess að þurfa að hafa áhyggjur af óveðri á almenningunum eða ófærð á heiðunum -

Hjartans hamingjuóskir með daginn, þetta er frábært. Vildi vera á svæðinu í dag en er að vinna . Ég fer svo sannarlega við fyrsta tækifæri út á nesið mitt fagra og fer þá í gegn um fjögur jarðgöng. Ekki hefði ég trúað því sem lítið stelpuskott á Sauðanesi að ég ætti eftir að upplifa slíkt Smile 

Hamingjuóskir í heimabyggðina mína ! 


Vitavarðardóttirin hugsar........

 

 

Hélt ég væri svo sterk en það er öðru nær..........

Það líður að nóvember en þá er liðið eitt ár frá því að systir mín kvaddi og það gerir mig svo sorgmædda.

Sorgin breytist ekki. Bið því almættið um hjálp eins og svo oft áður ..................... 

Hugsa til vinnufélaga sem situr hjá veikum föður sínum í dag og engin veit hvað verður ....Það góða hjá okkur er að pabbi minn er að hressast aftur :) 


Loksins eg fann þig.....

Knús og kreist !

Heart 


Haustið og haustlaufin falla....

Eitthvað róandi og fallegt við að hlusta á þessa söngkonu. Evu Cassidy.

Sumarið geymir fallegar minningar, með mikilli útiveru og frelsi og því að  þurfa ekki að dúða sig í öll þessi vetrarföt, ganga léttklæddur til fjalla og þurfa ekki að hafa áhyggjur af kuldanum sem svo læðist að manni með haustinu.

En svona er landið okkar. Vetur - sumar - vor og haust, ekkert sem breytir því !

 

Tilvalið að skella inn einu haustlagi með Evu. Fallegt !

 

Sendi ykkur góða strauma inn í haustið og veturinn og það kemur aftur vor að liðnum vetri Smile

Heart 


Er hugsi....

Knús til ykkar. Heart 


Skipið fórst......

Elvis, Þetta er fyrsta lag sem ég man eftir í mínu lífi - Vitaskip hafði farist um kvöldið og í næsta túr á undan hafði pabbi minnn verið þar um borð. Ég  man að ég vaknaði upp við þessar fréttir og þá var þetta lag spilað. Heart Hann lifir enn þessi elska ! Íslenskir sjómenn, það eru menn að mínu skapi !

 


Ég vildi að ég væri eins og þú..........

Flottasti söngur sem um getur á þessu lagi.

 

Samt finnst mér Helgi Björnsson túlka þetta vel.

Njótið vinir mínir og eigið gott kvöld Heart 


Með þeim fallegri..........

Knús á línuna Heart 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband