Færsluflokkur: Bloggar

Til þess að gefa lífi þínu

gildi skaltu verja því til þess sem skiptir máli. Spakmæli dagsins í dag. Líf mitt núna, bara að snúast um hið daglega líf og halda áfram með uppbyggingu Norðurportsins. Fengum fólk í heimsókn þangað í dag sem leist bara vel á framkvæmdirnar. Svo fæddust...

Bros....

Spakmæli dagsins: Hvað er Það sem engri annarri lifandi veru er fært að gera nema manninum ? Að brosa. Guð gaf manninum þá einstöku gjöf að geta brosað. Leiðum huga okkar að því að eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt. Ringulreið í þjóðmálunum áfram...

Veit ekki...

...hvað er í gangi en er búin að vera slæm í vinstra hnénu, gat varla sofið í nótt fyrir verkjum. Kannski er ég búin að ætla mér um of en heilsan er betri í dag eftir heita bakstra og fótinn uppá púða í nótt + verkjalyf sem eru eitthvað sem ég tek ekki...

Fall er fararheill.... ?....

Vaknaði bara spræk í morgun eftir góðan svefn í nótt. Er mikið að lagast í hendinni svo að öllum líkindum hef ég sjúkdómsgreint mig rétt og að um slæmt mar sé að ræða Sparaði mér 5 þúsund kall á því að fara ekki á slysadeildina í gær en var tvístígandi -...

Nördin....

Var að fá slóð á dönsku Eurovision lögin þar sem Hera (okkar) syngur frábært lag... http://www.youtube.com/watch?v=lRYDyC7RL1o&feature=channel Og auðvitað slóðin á Porutgölsku undanúrslitin líka !

Hvernig við bregðumst við

því sem gerist í kringum okkur er undir okkur sjálfum komið. Spakmæli þessa föstudags og hittir í mark eins og alltaf. Ég varð fyrir því óláni að detta í gær í hálkunni hér fyrir utan blokkina. Var að fara á kvöldgöngu með Dalí og það var eins og kippt...

Nýr dagur....

Spakmæli dagsins: Það sem lítur út fyrir að vera leiðarlok er oft bara beygja á leiðinni. Það er ennþá mikið að gera í Norðurporti og sennilega verðum við búnar að þrífa sjö sinnum áður en yfir líkur í gær var verið að mála gólfið í kaffistofunni og...

Táragas...

Var nokkuð annað að gera í stöðunni, þegar fólk er farið að fá útrás í því að grýta lögregluna, þá er auðvitað ekki um annað að gera en reyna að stöðva leikinn. Það er sárt að menn innan lögreglunnar slösuðust. Mótmæli eiga að vera mótmæli - ekki...

Nætursvefninn ekki alveg vær og góður...

Ég vissi af mínu fólki á vettvangi í miðbæ Reykjavíkur og þegar ég var að reyna að sofna, var aftur að fjölga fólkinu í mótmælendahópnum. Þá vissi ég að þetta yrði mér og fleirum ekki svefnsöm nótt. Mér varð hugsað til maka lögreglumanna og barna sem...

Stór dagur...

Mikil mótmæli við alþingishúsið og Barack Obama sór embættiseið vestur í henni Ameríku. Það er einhver taug hjá mér til Ameríku eftir að hafa komið þangað eldsnöggt í haust. Svo á ég þar fjölmarga ættingja á vesturströndinni, afkomendur föðursystur...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband